Óánægja með stjórnvöld ráði höfnun 27. maí 2005 00:01
Allt bendir til að Frakkar hafni stjórnarskrá Evrópusambandsins á sunnudaginn. Óánægja með eigin hag virðist ástæða þessa frekar en grundvallarandstaða við efni og tilgang stjórnarskrárinnar. Jacques Chirac Frakklandsforseti birtist löndum sínum í sjónvarpsávarpi í gærkvöldi og gerði örvæntingarfulla tilraun til að sannfæra þá um ágæti stjórnarskrár Evrópusambandsins. Það virðist ekki hafa skilað miklu miðað við svörin sem fengust á götum Parísar í morgun. Bertrand Buguet sagðist ætla að segja nei þar sem hann teldi að ef byggja ætti upp trausta Evrópu þyrfti að skilgreina tilteknar breytur. Honum fyndist þær óskýrar nú. Rezicka Hellel, sem er fylgjandi stjórnarskránni, sagðist ætla að samþykkja hana þar sem hún styddi Evrópu. Stjórnmálaskýrendur segja nokkrar ástæður liggja á bak við afstöðu fransks almennings, en 55 prósent aðspurðra eru mótfallin stjórnarskránni. Dominique Moisi hjá frönsku alþjóðastjórnmálastofnuninni nefnir þrennt. Fólk segi nei til mótmæla Chirac og það tjái ótta sinn og næstum því örvæntingu vegna mikils atvinnuleysis. Þá lýsi það fyrirvara sínum um stöðu Evrópu eftir stækkun ESB. Því sé um að ræða sambland pólitískrar, efnahagslegrar og evrópskrar víddar. Við þetta bætist að fáir vita um hvað stjórnarskráin snýst í raun og veru. Simon O'Connor, sérfræðingur í málefnum ESB, telur að stjórnarskráin sé vel heppnuð að því leyti að með henni hafi skapast opnari leið til að endurskoða Evrópusáttmálana en áður. Hins vegar sé stjórnarskráin mislukkuð að því leyti að almenningur um gervalla Evrópu viti harla lítið um tilvist hennar og lítil umræða hafi farið um hana. Aðeins í ríkljunum þar sem þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram sé einhver umræða um málin. Oft sé fólk illa upplýst, ranghugmyndir séu uppi en að minnsta kosti fari umræðan fram og það sé jákvætt.
Erlent Fréttir Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Sjá meira