Blásið til stórsóknar 26. maí 2005 00:01
Íraska ríkisstjórnin tilkynnti í gær að hún hygðist skera upp herör gegn uppreisnarmönnum í landinu. Að minnsta kosti fimmtán Írakar dóu í árásum gærdagsins. Síðastliðinn mánuð hafa yfir 620 manns fallið í árásum í Írak og því þarf ekki að koma á óvart að ríkisstjórn al-Jaafari sé búin að fá nóg. Í gær tilkynntu Bayan Jabr innanríkisráðherra og Saadoun al-Duleimi varnarmálaráðherra að 40.000 íraskir hermenn myndu umkringja Bagdad frá og með næstu viku og þjarma að uppreisnarmönnum. Á næstu mánuðum verður efnt til slíkra aðgerða víðar um landið. "Frá og með næstu viku verður mynduð sterk og þétt keðja um höfuðborgina, svipað og armband á úlnlið. Enginn mun geta slitið þessa keðju," sagði al-Duleimi við fréttamenn í gær. Hann bætti við að 675 varðstöðvar yrðu settar upp umhverfis borgina. Þetta er stærsta aðgerð íraska hersins síðan ráðist var inn í landið í mars 2003. Í það minnsta 15 Írakar týndu lífi í árásum víða um landið í gær. Þar á meðal var lítil telpa sem varð fyrir skothríð í átökum uppreisnarmanna við bandaríska hermenn í bænum Tal Afar í norðurhluta landsins.
Erlent Fréttir Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira