Norrænn hópur vann 12. október 2005 00:01
Áhersla er lögð á góða aðkomu, einfaldar tengingar bygginga og létt og vingjarnlegt yfirbragð þar sem vellíðan sjúklinga og starfsfólks er haft í fyrirrúmi, í tillögunni sem sigur bar úr býtum í samkeppni um nýtt deiliskipulag á lóð Landspítala -háskólsjúkrahúss. Hópur sem skipaður er íslensku arkitektastofunni Arkitektur.is, Verkfræðistofu Norðurlands, norsku verkfræðistofunni SWECO Grøner og dönsku arkitekta- og landslagsarkitektastofunum C.F. Møller og Schønherr Landskab, fór með sigur af hólmi í keppninni. Tillagan gerir ráð fyrir að um 85.000 fermetrar af nýbyggingum rísi á spítalalóðinni á árunum 2009 til 2018 auk þess að umtalsverðar endurbætur á að gera á eldri byggingu sjúkrahússins. Sjö tillögur kepptu, en niðurstaða dómnefndar var í gær kynnt heilbrigðisráðherra við hátíðlega athöfn í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands. Gestir og gangandi geta skoðaða tillögurnar í anddyri Barnaspítala Hringsins frá og með deginum í dag til mánaðamóta. "Úrslitin og samkeppnin marka enn einn áfangann í því margþætta verkefni sem bygging nýs spítala fyrir alla landsmenn óneitanlega er," sagði Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, við athöfnina í gær, en um átta mánuðir eru síðan ríkisstjórnin samþykkti tillögu hans um að halda áfram uppbyggingu Landspítala–háskólasjúkrahúss við Hringbraut. Forval var auglýst í byrjun febrúar og sóttu 18 fjölþjóðlegir hópar sérfræðinga um þátttöku í samkeppninni og var sjö stigahæstu boðið að keppa um skipulagið samkvæmt keppnislýsingu sem samin var af fulltrúum Landspítala – háskólasjúkrahúss, Háskóla Íslands og Framkvæmdasýslu ríkisins. Jón Kristjánsson lýsti því yfir að ekki væri eftir neinu að bíða varðandi áframhaldandi undirbúning eftir að ríkisstjórnin samþykkti nýverið að 18 milljarðar af söluandvirði Símans skyldu renna til byggingar á nýju sjúkrahúsi. Í áliti dómnefndarinnar kemur fram að einróma álit hennar sé að allar tillögur hafi verið athyglisverðar og mjög vel unnar, en vinningstillagan hafi verið besti kosturinn til nánari útfærslu á deiliskipulaginu. Hún 12 stigum hærri einkunn en næsta tillaga, eða samtals 92 stig af 100 mögulegum. "Gamla Hringbraut er færð upp að gamla spítalanum og er meginbyggingum spítalans komið fyrir sunnan hennar. Mælikvarði og hlutverk götunnar í skipulaginu er sannfærandi þar sem nýjar, jafnt sem eldri byggingar spítalans, raðast meðfram henni á látlausan hátt," segir í álitinu. Nefndin leggur svo til að gengið verði til samninga við vinningshafana um að þeir verði ráðgjafar Landspítala – háskólasjúkrahúss við áframhaldandi uppbyggingu spítalans. >
Fréttir Innlent Mest lesið Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Komið að ögurstundu Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Innlent Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Innlent Fleiri fréttir Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sólheimar segja upp þjónustusamningnum „Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Kristrún kynnir planið fyrir sveitarstjórnarkosningarnar Sjá meira