Innlent

Drengir kveiktu í bíl

Tveir fjórtán ára drengir sluppu með skrekkinn þegar þeir voru að fikta með eld inni í yfirgefnum bíl við Hagasmára á móts við Smáralilnd í gærkvöldi. Þeir misstu eldinn úr böndunum með þeim afleiðingum að bíllinn varð alelda á skammri stundu, en þeir sluppu ómeiddir út eftir að hafa reynt að slökkva eldinn. Slökkvilið var kallað á vettvang og slökkti í bílhræinu, en lögreglan í Kópavogi veitti drengjunum föðurlegt tiltal.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×