Innlent

Betur komin án þeirra

Grétar Þorsteinsson
Forseti Alþýðusambands Íslands.
Grétar Þorsteinsson Forseti Alþýðusambands Íslands.

Mikil umræða hefur skapast um starfsmannaleigur og eru kærur og meiðyrðamál í farvatninu eftir hörð átök verkalýðshreyfingarinnar við starfsmannaleiguna 2B.

Eru starfsmannaleigur nýjar af nálinni hér á landi?

"Þær eru það. Við fórum að sjá þær fyrst fyrir ári eða svo. Síðan hefur starfsemi þeirra verið sívaxandi. Fyrst voru þær erlendar en nú erum við Íslendingar sjálfir farnir að hasla okkur völl."

Er þetta eitthvað sem fylgir stóriðjuframkvæmdum?

"Ég geri ráð fyrir því að einmitt stóru framkvæmdirnar við Kárahnjúka hafi kallað eftir því að starfsmannaleigur færu að starfa hér. Fyrstu dæmin hér voru alfarið bundin við Kárahnjúka en svo hefur þetta flætt yfir vinnumarkaðinn."

Erum við betur komin án starfsmannaleiganna en með þær?

"Miðað við reynsluna erum við betur komin án þeirra, þó með undantekningum. Reglan er því miður sú að þessar starfsmannaleigur virðast vera að hafa rangt við, eru að nýta sér bágindi og döpur kjör útlendra félaga okkar sem eru að koma hér til starfa."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×