Íhuga bann við innflutningi á skrautfuglum og gaukum 27. október 2005 07:00 SKRAUTFUGLAR. Innflutningur á páfagaukum og skrautfuglum er eitt af þeim atriðum sem til athugunar eru í landbúnaðarráðuneytinu.
Til athugunar er í landbúnaðarráðuneytinu að banna innflutning á lifandi páfagaukum og skrautfuglum, að sögn Halldórs Runólfssonar yfirdýralæknis. Hann segir enga ákvörðun enn hafa verið tekna en það sé á hendi landbúnaðarráðherra. Yfirdýralæknir segir að bannið sé eitt af því sem komi verulega til greina sem ein af varnaraðgerðum gegn fuglaflensunni. Evrópusambandið sé nýbúið að setja slíkar reglur um bann á innflutning við lifandi fuglum vegna uppákomunnar í Englandi. Í síðustu viku drapst páfagaukur sem geymdur var í einangrunarstöð í Essex í Englandi. Hann reyndist hafa drepist úr fuglaflensu af H5N1-stofni, en sá stofn getur sýkt fólk. Komið var með fuglinn til landsins nokkru áður frá Súrínam í Suður-Ameríku og var hann settur í sóttkví með 216 fuglum frá Taívan. Að sögn vefútgáfu BBC hafði enginn fuglanna komist út úr stöðinni og því er talið útilokað að flensufaraldur muni kvikna út frá þessu tilfelli. "Þetta sýnir að hættan er fyrir hendi og málin eru því í nákvæmri skoðun," segir Halldór Runólfsson yfirdýralæknir. Talsmaður framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins staðfesti í gær að banamein þrettán álfta sem fundust dauðar í Króatíu á dögunum hefði verið fuglaflensa af H5N1-stofni. Fuglaflensa af þessum stofni hefur þegar greinst í fuglum í Rússlandi, Tyrklandi og Rúmeníu.
Innlent Mest lesið Bílstjórinn þrettán ára Innlent Orrustuþotur yfir Borgundarhólmi og drónar trufla flug í Noregi Erlent Fyrrverandi landgönguliði drap að minnsta kosti fjóra í Michigan Erlent „Virðist bitna á saklausum ferðamönnum“ Innlent Adams hættir og Cuomo og Mamdani skiptast á skotum Erlent Vísað burtu af hóteli og svo handtekinn í sameign Innlent Evrópusinnar héldu meirihluta í Moldóvu Erlent 29 prósent heimila skipuð einstæðingum: „Meðvituð ákvörðun til að njóta frelsis“ Innlent Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Innlent Flúði próflaus undan lögreglu með einum of marga farþega þegar bíllinn valt Innlent Fleiri fréttir Fara yfir stöðuna vegna Play og skipuleggja sig Bílstjórinn þrettán ára Vísað burtu af hóteli og svo handtekinn í sameign 29 prósent heimila skipuð einstæðingum: „Meðvituð ákvörðun til að njóta frelsis“ Aldrei neinn afsláttur gefinn í flugprófunum Allt niður í þriggja mánaða fiðluleikara „Virðist bitna á saklausum ferðamönnum“ „Ákveðinn miski“ að geta ekki treyst vatninu Flúði próflaus undan lögreglu með einum of marga farþega þegar bíllinn valt Umfangsmiklar árásir og símengað neysluvatn Báturinn áður sokkið í sömu höfn og án skýringar Drukkinn ökumaður keyrði á þrjá bíla og reyndi að stinga af Um 200 nemendur eru í lögreglunámi á Akureyri Skora á Snorra að gefa kost á sér Bíll valt eftir flótta undan lögreglu og þrír slösuðust Reiknað með afskiptum af öllum samkomum Vítisengla Lögreglan með málið til rannsóknar Áframhaldandi aðgerðir gegn Vítisenglum Geirfinnsmálið, orkuöflun, gjaldeyrishöftin og íslenskan á Sprengisandi Drógu aflvana bát í land í Neskaupstað Með bílinn fullan af fíkniefnum „Það verður boðið fram í nafni VG“ Loka aftur fyrir umferð á slóðum Vítisengla „Þjóðaröryggisráð er ekki upp á punt“ Rak frá Bretlandi til Íslands á einum mánuði Bátur sekkur við Hafnarfjarðarhöfn Ellilífeyrisþegar sá hópur sem hafi það einna best Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Þór sækist eftir endurkjöri Furðar sig á þjóðaröryggisráði og rándýr barnaafmæli Sjá meira