Hannes byrjar gegn Ítölum 29. mars 2005 00:01
Þrjár breytingar verða á íslenska liðinu frá því í leiknum gegn Króötum á laugardaginn en íslenska liðið mætir því ítalska í Padova í kvöld. Hannes Sigurðsson er einni frammi í sínum fyrsta landsleik en hann hefur verið markahæsti leikmaður 21 árs landsliðsins undanfarið ár. „Þetta byrjaði rosalega vel undir stjórn Ásgeirs og Loga. Við unnum þrjá fyrstu leikina, fengum reyndar skell í vináttuleik gegn Englandi en unnum svo Ítalíu í frábærum leik og allt virtist á flugi fyrir HM. En svo komu þessir skellir á móti Búlgaríu og Ungverjalandi í riðlakeppninni, eftir það hrundi sjálfstraustið og það hefur reynst afskaplega erfitt að vinna sig út úr því," sagði Hermann Hreiðarsson landsliðsfyrirliði við Fréttablaðið eftir æfingu í Padova á Ítalíu í gærkvöld. Þegar er búið að selja 20 þúsund miða á vináttulandsleik Ítalíu og Íslands og búist við um 25 þúsund manns en leikvangurinn, sem er frekar nýlegur, tekur um 30 þúsund manns. Padova leikur í Serie C en þetta er fyrsti landsleikurinn í borginni í 80 ár. Þrátt fyrir að íslenska liðið hafi fengið á sig fjögur mörk gegn Króatíu á laugardaginn ætla landsliðsþjálfararnir að notast við sama leikkerfi. „Leikskipulagið okkar gekk upp í meginatriðum gegn Króatíu. Við fórum í gegnum hvernig við eigum að verjast betur í horn- og aukaspyrnum á æfingunni hér áðan og nú vitum við betur hvað við þurfum að gera, við þurfum einfaldlega að vera grimmari maður á móti manni," sagði Brynjar Björn Gunnarsson við Fréttablaðið. Þrír byrjunarliðsmenn duttu út vegna meiðsla og kemur meðal annars einn nýliði í þeirra stað. Liðið verður þannig skipað (4-2-3-1): Árni Gautur Arason í markinu, Kristján Örn Sigurðsson, Ólafur Örn Bjarnason, Hermann Hreiðarsson og Indriði Sigurðsson. Aftastir á miðjunni verða Pétur Marteinsson og Brynjar Björn Gunnarsson. Gylfi Einarsson verður fremstur á miðjunni, Bjarni Guðjónsson kemur inn fyrir Jóhannes Karl bróður sinn og Grétar Rafn Steinsson byrjar inni á fyrir Arnar Þór Viðarsson. Þá byrjar nýliðinn Hannes Þ. Sigurðsson í fremstu víglínu fyrir Heiðar Helguson en Hannes hefur spilað feikilega vel fyrir U21 árs liðið og skorað meðal annars tvær þrennur. Allir leikmenn íslenska liðsins fá að spreyta sig í leiknum og því ljóst að fjórir nýliðar koma við sögu. „Ég lít á það þannig að nú hefjist undirbúningur fyrir næstu keppni og við notum þessa leiki sem eftir eru á þessu ári fyrir hana. Við þurfum líka að ná okkur í stig til þess að ná sem bestu sæti í riðlakeppni HM svo við föllum ekki um styrkleikaflokk. Það verður ekkert vandamál að gíra upp í þennan leik gegn Ítalíu því það er alltaf heiður að spila með landsliðinu," sagði Hermann Hreiðarsson. Ítalía spilar 4-3-3 gegn Íslandi og aðeins Marco Materazzi, varnarmaður Inter, er eftir af byrjunarliðinu frá leiknum gegn Skotum um helgina sem Ítalía vann 2-0. Ítalska dagblaðið La Gazzetta dello Sport eyðir opnu undir landsleikinn í gær þar sem því er slegið upp að fimm leikmenn Sikileyjarliðsins Palermo verði líklega í byrjunarliði Ítalíu. Þá muni þetta B-lið Ítalíu selja sig dýrt því þarna eru leikmenn sem vilja sanna sig fyrir landsliðsþjálfaranum Marcello Lippi.
Íslenski boltinn Mest lesið Maður dagsins á HM: Af hverju fór Messi að gráta og átti að reka hann út af? Fótbolti Allt í bál og brand í Formúlu 1 Formúla 1 Tárvotur Messi jafnaði HM markametið með þrennu Fótbolti Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Fótbolti „Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Golf Haaland í ham er Noregur hóf HM á sigri Fótbolti Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Fótbolti Freyr ráðinn þjálfari Rosenborg Fótbolti Kristófer og Guðrún eignuðust son Körfubolti Fleiri fréttir ÍR stöðvaði Gróttu og Kári kom Fylki í annað sæti Íslendingarnir fengu mjög góð ráð frá Patrick Reed Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Bjó til sex mörk Fram á gamla heimavellinum Kristófer og Guðrún eignuðust son Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Evrópudagskrá íslensku liðanna klár Vestri gæti farið til Búlgaríu eða Írlands Mourinho hringdi í Silva sem samdi til tveggja ára Ísraelskt lið bíður Víkinga Maður dagsins á HM: Af hverju fór Messi að gráta og átti að reka hann út af? Sjáðu mörkin í Víkinni, sturlunina í Garðabæ og Viktor tækla Val Allt í bál og brand í Formúlu 1 „Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Freyr ráðinn þjálfari Rosenborg Tárvotur Messi jafnaði HM markametið með þrennu Haaland í ham er Noregur hóf HM á sigri „Tvær stórar ákvarðanir sem féllu á móti okkur“ „Aldrei stressaður um að þeir myndu jafna“ Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Emil: Byrjaði brösulega hjá okkur „Keyrðum þetta saman í gegn“ Írak - Noregur | Langþráð stund fyrir norsku þjóðina „Ef einhver fer að slaka á fær hann að heyra það“ Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Stjarnan - Breiðablik 4-4 | Átta marka tryllir í Garðabænum Uppgjörið: Víkingur - KR 2-0 | Víkingar enn ósigraðir á toppnum Uppgjörið: 1-0 ÍA - Valur | Viktor skoraði markið sem færði Skaganum þrjú stig Sjá meira