Tvö þúsund manns týndu lífi 29. mars 2005 00:01
Nú er talið að allt að tvö þúsund manns hafi týnt lífi í jarðskjálftanum sem varð undan ströndum Súmötru á sunnudaginn. Engin flóðbylgja myndaðist í kjölfar skjálfans og því var manntjónið aðeins brot af því sem varð af völdum skjálftans mikla fyrir þremur mánuðum. Viðvörunarbúnaður er þegar farinn að gefa góða raun. Jarðskjálftinn á sunnudaginn sem átti upptök sín skammt vestur af Súmötru var afar stór, eða 8,7 stig á Richter-kvarðanum. Nias-eyja sem er nánast ofan á skjálftamiðjunni virðist hafa orðið verst úti. Fjöldi húsa hrundi til grunna víðs vegar um eyjuna og beið fjöldi fólks þar bana af þeim sökum. Í gær höfðu hjálparstarfsmenn fundið á fjórða hundrað líka í húsarústum. Óstaðfestar fregnir herma að hundrað lík hafi fundið á Simeulue-eyju sem er skammt frá. Í viðtali við fréttamenn giskaði Jusuf Kalla, varaforseti Indónesíu, taldi að allt að tvö þúsund manns hefðu týnt lífi. Ekkert er vitað um afdrif íbúa Banyak-eyja sem eru á þessum slóðum en þar búa tíu þúsund manns. Talið er að tveir Svíar hafi dáið í hamförunum en þeir voru á brimbrettum við Nias-eyju. Hjálparsamtök hafa þegar tekið að senda vistir og lyf til Nias-eyju. Erfitt er þó um aðdrætti því flugvöllur eyjarinnar eyðilagðist í skjálftanum. Frumútgáfa útbúnaðar sem vara á við flóðbylgjum þótti gefa góða raun í fyrradag enda þótt hann verði ekki að fullu nothæfur fyrr en á næsta ári. Strandhéruð í Taílandi, Indónesíu og á Sri Lanka voru rýmd eftir að búnaðurinn gaf merki um yfirvofandi hættu. Bush Bandaríkjaforseti bauð Indónesum aðstoð sína og vottaði þeim samúð. Þá hafa ríkisstjórnir Ástralíu og Japans heitið því að vera til reiðu ef Indónesar óska þess.
Erlent Fréttir Mest lesið Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent „Skráningum rignir inn“ Innlent „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Innlent Hvalur háði hálftíma dauðastríð Innlent Fleiri fréttir Klifu á topp Empire State-byggingarinnar Þýska landsliðið spegli land stöðnunar Eldur braust út í fjölbýlishúsi og nokkrir eru látnir Mótmælendur í Suður-Afríku krefjast brottflutnings innflytjenda Úkraínumenn kaupa sextán Gripen E frá Svíþjóð Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Börn sem fæðast í Bandaríkjunum áfram talin bandarísk Mega banna trans konum að stunda keppnisíþróttir Úkraínskur auðkýfingur særðist í sprengjutilræði í Mónakó Reiðin magnast í Venesúela Sjötti lést af sárum sínum á sjúkrahúsi Fimm sagðir látnir í skotárás nærri Hamborg Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Hátt í milljón sótt um dvalarleyfi á Spáni Sammælast um að bera klæði á vopnin Yfir þúsund látnir í hitabylgjunni í Evrópu og hitamet falla víða Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Segir Ísraelsher hafa eyðilagt gangakerfi Hezbolla-samtakanna Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Sjá meira