Góður sigur ÍA í Eyjum 12. september 2005 00:01 "
Við hittum ekki á góðan leik í dag hverju sem um er að kenna. Við eigum verðugt verkefni í næstu umferð þar sem við höfum aðeins hlotið 2 stig á útivelli í sumar. Við þurfum að tjasla okkur saman og finna lausn á því hvað við vorum að gera rangt í dag," sagði Guðlaugur Baldursson, þjálfari ÍBV, eftir að Skagamenn höfðu unnið sannfærandi 2-0 sigur á Hásteinsvelli þar sem Eyjaliðið hefur tekið 15 af þeim 17 stigum sem liðið hefur í Landsbankadeildinni. Sigurður Ragnar Eyjólfsson kom ÍA yfir á 56. mínútu en þá hafði slök vörn Eyjamanna ekki náð að stöðva útspark frá Páli Gísla Jónssyni, ágætum markverði ÍA liðsins, og boltinn endaði hjá Sigurði sem var kominn einn í gegn og honum brást ekki bogalistinn. Andri Júlíusson bætti svo við öðru marki undir lok leiksins þegar hann skallaði boltann inn af stuttu færi eftir hornspyrnu Skagaliðsins. "Þetta var rosa barátta og það er alltaf mjög erfitt að spila hérna í Eyjum. Við vissum að Eyjamenn myndu berjast fyrir lífi sínu í þessum leik og þeir gerðu það. Um leið og við náðum hins vegar að skora var pressan minni á okkur og við gátum legið aðeins til baka. Leikurinn opnaðist svo aðeins undir lokinn aftur þar sem við bættum við marki en þetta var mjög góður sigur í dag í erfiðum baráttuleik," sagði Sigurður Ragnar sem hefur fundið sig vel í framlínu Skagamanna í síðustu umferðum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Fótbolti Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Fótbolti Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Sport Þurfa að breyta reglum til að stytta högg kylfinga Golf Völlurinn of erfiður á síðustu tveim risamótum Golf Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Fótbolti Frábær byrjun Englendinga Fótbolti Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Fótbolti Kristófer og Guðrún eignuðust son Körfubolti Fleiri fréttir „Að ganga í gegnum þetta gerði hann miklu sterkari“ Lengri útsending frá Gunnlaugi á U.S. Open Maður dagsins á HM: Borinn saman við Essien Völlurinn of erfiður á síðustu tveim risamótum Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Stuðningsmenn baula á vatnspásurnar Liverpool sækir spænskan landsliðsmann Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Þurfa að breyta reglum til að stytta högg kylfinga Dagskráin í dag: Gunnlaugur Árni hefur leik á Opna bandaríska Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Alsíringum tekið opnum örmum í Kansas Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Þjálfaraskipti hjá Sveindísi Frábær byrjun Englendinga Komust í undanúrslit eftir framlengdan leik Sýndi miklar tilfinningar eftir fyrsta markið Þjóðhátíðarsigur á Ísafirði Portúgal - Austur-Kongó | Ronaldo byrjar og slær met ÍR stöðvaði Gróttu og Kári kom Fylki í annað sæti Íslendingarnir fengu mjög góð ráð frá Patrick Reed Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Bjó til sex mörk Fram á gamla heimavellinum Kristófer og Guðrún eignuðust son Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Evrópudagskrá íslensku liðanna klár Vestri gæti farið til Búlgaríu eða Írlands Mourinho hringdi í Silva sem samdi til tveggja ára Ísraelskt lið bíður Víkinga Sjá meira