Lögreglan í málið 1. nóvember 2005 20:15
Lögreglan í Reykjavík telur rétt að skoða hvort efni tímaritsins Bleikt og blátt brjóti í bága við hegningalög. Talsmaður Femínistafélagsins segir leitt að útgefandi blaðsins hafi farið þá leið að hafa myndefni blaðsins klámfengið. Ritstjórinn segir um erótík að ræða. Nýjasta tölublað B leiks og B lás sýnir meira hold heldur en þegar blaðið hét b&b og ljóst að tekin hefur verið ný stefna. Böðvar Bragason, lögreglustjóri í Reykjavík, segir að blaðið hafi verið skoðað af lögreglunni fyrir einu til tveimur árum síðan og þá hafi verið ákveðið að láta kyrrt liggja. Hann segist hafa heyrt að blaðið væri beittra nú og telur hann rétt að lögreglan skoði málið. Anna Katrín Guðmundsdóttir, t alsmaður Femínistafélagsins , er ósátt við blaðið. Hún segir það innihalda niðurlægingu gagnvart konum og finnst leitt að Fróði hafi ákveðið að fara út í klámbransann. Til þess að ná að útrýma ofbeldi þurfi að koma í veg fyrir að karlmenn sæki í svona efni. Katrín Anna segir að ekki eigi að sætt sig við efni sem sýni konur á niðurlægjandi hátt þótt tímarnir hafi breyst. Hún segir nauðsynlegt að spyrna á móti þeirri stefnu klámiðnaðirns að setja klám og kynlíf undir sama hatt. Hún segir að Femínistafélagið muni skoða hvort Bleikt og blátt verði kært. Klám sé bannað en yfirvöld hafi verið máttlítil í að framfylgja lögum þess efnis. Hún segir félagið hafa kært Símann og 365 fyrir dreifingu á klámefni, en enn hafi ekkert gerst í því máli. Guðmundur Arnarson, sem er r itstjóri blaðsins, segist ekki hræddur um að hafa gengið of langt. Verið sé að sinna þörfum ákveðins hóps og skoðanir á því hvað sé of mikið séu misjafnar. Hann segist ekki hræddur við lögregluaðgerðir, því fyrst þyrfti lögreglan að fara til annarra, eins og 365 og Símans. Guðmundur segist líta á efni blaðsins sem erótík, en aðrir kunni að vera ósammála því.
Erlent Innlent Mest lesið Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Erlent Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Innlent „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ Innlent Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Innlent „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Innlent Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Innlent Gul viðvörun á Suðurlandi á morgun Innlent Matthías kominn á áfangaheimili Innlent Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Innlent Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Innlent Fleiri fréttir Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Gul viðvörun á Suðurlandi á morgun „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Uppljóstrað um kínverskt glæpanet og Kristján Loftsson mætir í beina útsendingu Húsfyllir á stofnfundi hjá Áfram Ísland Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Átta handteknir vegna fíkniefnaræktunnar Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Strætó og sláttutraktor lentu saman Enginn handtekinn en áfram áætlað að sömu aðilar hafi verið að verki Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Sýknuð af kröfum Vestmannaeyjabæjar Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Forseti tekur sæti í ráðgjafanefnd um gervigreind Beinbrot og minniháttar áverkar í rútuslysi Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Rútuslys, umferðarhnútar og afbókanir í almyrkva Matthías kominn á áfangaheimili Sex slasaðir í rútuslysi í Suðursveit Kona mannsins sem lést þungt haldin Eina tilboðinu í ráðhúströppurnar hafnað og verkið boðið út að nýju Ráðin forstöðumaður Heyrnar- og talmeinastöðvar Viðbragðsáætlun virkjuð vegna fjarskiptaleysis á Sjúkrahúsinu á Akureyri Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Sjá meira