Innlent

Gæsluvarðhald framlengt

Gæsluvarðhald var í gær framlengt um viku yfir manni sem situr í haldi vegna fíkniefna í póstsendingum. Stúlku, starfsmanni pósthúss, sem einnig hefur setið í gæsluvarðhaldi var hins vegar sleppt, að sögn Harðar Jóhannessonar yfirlög­reglu­þjóns í Reykjavík.

Parið var handtekið 19. þessa mánaðar. Fólkið hafði þá farið með umslag af pósthúsinu þar sem konan vann, en lögregla var búin að skipta út kókaíni sem í því var fyrir litarefni. Grunur leikur á um að fleiri eiturlyfjasendingar kunni að hafa borist til landsins með þessum hætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×