Innlent

Lögreglan gleymdi að senda beiðni

Hæstiréttur birtir alla dóma á netinu og þá fylgir líka fyrri dómur eða úrskurður héraðsdómstólanna. 
Fréttablaðið/E.Ól.
Hæstiréttur birtir alla dóma á netinu og þá fylgir líka fyrri dómur eða úrskurður héraðsdómstólanna. Fréttablaðið/E.Ól.

Krefjist rannsóknarhags­munir þess að úrskurðir hér­aðs­dóms fylgi ekki dómum Hæsta­­réttar á netinu þarf lögregla að fara fram á það fyrir fram, að sögn Þorsteins A. Jónssonar, skrif­stofu­stjóra Hæstaréttar.

Á mánudaginn fylgdi úr­skurð­ur Héraðs­dóms Reykja­vík­ur gæslu­­­varð­halds­dómi Hæsta­rétt­ar í máli sem varðar inn­flutn­ing á fíkni­efnum um pósthús, en tvennt var handtekið vegna málsins. Lög­regla sagði í kjölfarið að óheppi­legt hefði verið að allar upp­lýs­ing­ar­nar hefðu komið fram. "Í þessu tilviki barst engin beiðni frá lögreglu," segir Þorsteinn, en bætir við að eftir að dómurinn kom á vefinn hafi lögregla haft samband. "Þá óskuðu þeir eftir að úrskurður Héraðsdóms yrði tekinn af netinu og það var gert samstundis. Svo fer hann þar inn aftur eftir umsaminn tíma."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×