Innlent

Engin mannekla né biðlistar

Gunnhildur Sæmundsdóttir Leikskólafulltrúi
Í Mosfellsbæ eru hvorki biðlistar eftir leikskólaplássum né skortur á starfsmönnum skólanna.
Gunnhildur Sæmundsdóttir Leikskólafulltrúi Í Mosfellsbæ eru hvorki biðlistar eftir leikskólaplássum né skortur á starfsmönnum skólanna.

Engin börn eru á biðlista eftir leikskólaplássum í Mosfellsbæ og jafnframt eru allar deildir skólanna fjögurra fullmannaðar. Ríflega 100 manns starfa á leikskólum bæjarins og líta eftir um 450 börnum.

"Ég hef í raun enga skýringu á þessu aðra en þá að það ríkir mjög góður starfsandi hjá okkur," segir Gunnhildur Sæmundsdóttir, leikskólafulltrúi Mosfellsbæjar. "Þau fá greitt samkvæmt kjarasamningum, svo ekki er hærri launum fyrir að þakka, en þetta er mjög barnvænt bæjarfélag og ég held að fólk sé bara ánægt með að vinna fyrir okkur."

Að sögn Gunnhildar finnur bærinn þó fyrir skorti á faglærðu starfsfólki eins og önnur sveitarfélög. Bærinn hefur smám saman verið að bæta við leikskólaplássum og er það stefna hans að öll börn sem verða tveggja ára á árinu fái pláss. "Það hefur gengið eftir núna í nokkur ár," segir Gunnhildur.

Gjöldin sem foreldrar þurfa að greiða eru með þeim lægstu á höfuðborgarsvæðinu. Einnig er systkinaafsláttur hærri en á flestum öðrum stöðum og gengur hann þvert á kerfið, frá því að barnseignarleyfi lýkur og fram til tólf ára aldurs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×