Innlent

Óánægður með rýran hlut menningarefnis í Kastljósi

Jónatan Garðarsson
Jónatan Garðarsson

"Ég er alvarlega að íhuga að hætta," segir Jónatan Garðarsson, Kastljósmaður í Ríkissjónvarpinu. Hann kveðst afar óánægður með rýran hlut menningarumfjöllunar í Kastljósi. "Mér finnst þátturinn vera að þróast meira út í að vera stórt og mikið Kastljós heldur en þetta sambland sem hann átti að vera og kann því ekki vel."

Jónatan var lengi með menningarþáttinn Mosaik í Ríkissjónvarpinu. Hann segist hafa talið að sá þáttur hafi að einhverju leyti átt að færast inn í stóra Kastljóssþáttinn og sú hefði verið ástæðan fyrir því að hann hafi slegið til og verið með.

"En það var náttúrlega farið mjög bratt af stað," segir hann. "Að auki var ég ekki á landinu fyrstu vikuna eftir að Kastljósinu var hleypt af stokkunum í nýrri mynd. En það menningartengda efni sem verið hefur í þættinum hefur verið minna en ég hélt að það yrði í upphafi. Dægurmálin hafa tekið meira rými. Ég er með efni sem er tilbúið og bíður birtingar, svo og ýmsar hugmyndir. En það er ómögulegt að fara miklar tökur ef allt efnið frýs svo inni."

Jónatan segist undrandi á hversu menningarefni víki "hart og skart" út úr Kastljósi, þrátt fyrir að menningin blómstri sem jafnan áður. "Ég ætla að sjá til fram að mánaðamótum og þá er ég hættur, - ef ég hætti," segir hann. "Ég hef ekkert starf í hendi. En ég ætlaði að gefa þessu mánuð og sjá hvernig færi. Hann verður liðinn um mánaðamót. Ef mér sýnist að málin haldi áfram á þann veg sem verið hefur hingað til þá fer ég að gera eitthvað annað."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×