Kaupa sig inn í biðröð eftir bóluefni 27. október 2005 07:00 Fuglaflensan virðist vera að færa sig norður eftir álfunni eftir að hún hafði komið upp í Tyrklandi og Rúmeníu.
Lyfjaframleiðendum eru greiddar háar fjárhæðir á hverju ári af löndum sem vilja tryggja sér bóluefni gegn fuglaflensu ef og þegar á þarf að halda. Norðmenn greiða hollenskum lyfjaframleiðanda, Solvey, sem svarar tæpum 56 milljónum íslenskra króna gegn því að fá að minnsta kosti fjórar milljónir bóluefnisskammta ef flensan skellur á. Þeir sem borga sitja fyrir með bóluefni. Haraldur Briem, sóttvarnalæknir hjá landlæknisembættinu, segir að tryggingagjald af þessum toga veiti ekki fullkomið öryggi fyrir því að bóluefnið fáist jafn skjótt og í jafn miklum mæli og gerður samnningur kveði á um. "Við erum að athuga þetta og sjá hvað best er að gera í stöðunni," segir hann. "Við höfum samflot með Norðurlöndunum. Verði hafin framleiðsla á Norðurlöndunum breytist væntanlega samningurinn sem Norðmenn hafa gert." Spurður hvort íslensk stjórnvöld og heilbrigðisyfirvöld hafi athugað möguleikann á að greiða tryggingagjald til að sitja að bóluefni segir Haraldur að verið sé að kanna alla möguleika. Hann ítrekar að ýmsir telji þetta ekki mikla tryggingu þegar upp sé staðið. "En við verðum að hafa vaðið fyrir neðan okkur og fylgjast með markaðnum meðan beðið er eftir frekari ákvörðunum um eigin framleiðslu. Það eru allir möguleikar athugaðir," bætir hann við. Hér á landi eru nú til um 89 þúsund skammtar af bóluefni. Þeir verða notaðir til meðferðar gegn fuglainflúenslu berist hún hingað og til að verja heilbrigðisstarfsfólk smiti. "Það er hægt að nota þetta sem fyrirbyggjandi aðgerð gegn flensusmiti," segir Haraldur. "Flestir hugsa sér að nota það í meðferð, þannig að því verði ráðstafað á sem skynsamlegastan hátt. Sé lyfið notað á fyrirbyggjandi hátt þarf fólk að nota það mjög lengi. Það yrði óhemju kostnaðarsamt ef allir tækju það í fyrirbyggjandi skyni. Ég reikna með að bóluefnið yrði notað til að verja heilbrigðisstarfsfólk sem sinnir veiku fólki."
Innlent Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Halla boðar til ríkisráðsfundar Innlent Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Innlent Fleiri fréttir Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Sjá meira