Blair boðið á pönktónleika 27. ágúst 2004 00:01
Meðlimir íslensku pönkhljómsveitarinnar Tony Blair fagna komu bresku forsætisráðherrafrúarinnar, Cherie Booth Blair, hingað til lands og lýsa sérstakri ánægju með Rannsóknarstofu í kvennafræðum sem bjóða henni hingað á málþingið Konur, völd og lögin sem fram fer í Háskólabíói í dag. "Cherie Blair er glæsileg fyrirmynd ungra stúlkna og sönnun þess hversu langt konur geta náð ef þær hafa vit á að giftast merkum mönnum. Við erum hæstánægðir með þetta framtak að flytja hér inn fræga maka, það er mikil nýbreytni. Cherie er nú komin í hóp merkra maka stjórnmálaleiðtoga og hennar mun væntanlega vera getið í framtíðinni í sömu andrá og Nancy Reagan, Barbara Bush og Denis Thatcher," segir Páll Hilmarsson, meðlimur bandsins. Svo skemmtilega vil til að hljómsveitin Tony Blair, sem notið hefur nokkurra vinsælda fyrir lagið "Alltaf hlýtt á Hlemmi", hefur nýverið samið lagið "Cherie Blair" og telur sveitin það líklegt til að slá í gegn. "Við vorum búnir að semja þetta lag áður en við fréttum af komu hennar til landsins en það væri okkur sönn ánægja að fá að flytja lagið Charie Blair og jafnvel fleiri fyrir forsætisráðherrafrúna og helstu forsprakka Rannsóknarstofu í kvennafræðum. Pönkhljómsveitin er reiðubúin að skipuleggja einkatónleika í æfingahúsnæði sínu. Við sendum Rannsóknarstofunni skeyti með þessari ósk okkar en þeir tóku ekki vel í málið. Við fengum þau svör að lítið pláss væri á dagskrá Cherie til einkatónleika." Páll segist ekki útiloka að hljómsveitin reyni að spila fyrir frúna opinberlega. Tony Blair skipa bræðurnir Páll og Hilmar Hilmarssynir, Haraldur Ingi Þorleifsson og Guðmundur Björnsson og segja þeir ástæður nafngiftarinnar í samræmi við hefð pönkhljómsveita að velja sér stuðandi og á köflum ósmekkleg heiti. "Þannig hafa nöfn blóðþyrstra harðstjóra og stríðsglæpamanna löngum þótt henta vel sem hljómsveitarheiti."
Menning Mest lesið „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist Rassaumhirða karla í sókn Lífið Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Lífið samstarf Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Skandinavíska merkið Ninepine komið til Lín Design Lífið samstarf Fleiri fréttir „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi Sjá meira