Útbúnaður til kjarnavopna horfinn 12. október 2004 00:01
Útbúnaður til að búa til kjarnavopn hefur horfið frá Írak eftir að innrásin var gerð, segja vopnaeftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna. Bandaríkjamenn hafa lagt ýmsar hömlur á starf eftirlitsmanna frá alþjóðakjarnorkumálastofnuninni í Írak, og verða þeir að treysta á gervihnattamyndir og aðrar heimildir. Mohamed El-Baradei, yfirmaður stofnunarinnar, segir í skýrslu til öryggisráðs Sameinðu þjóðanna að gervihnattamyndir sýni að heilar byggingar í tengslum við kjarnorkuvopnaframleiðslu í Írak hafi verið rifnar án þess að neinar upplýsingar hafi verið gefnar um það, og útbúnaður fluttur á brott. Viðkvæmur tæknibúnaður hefur skyndilega verið boðinn til sölu erlendis, segir El Baradei, annað hefur horfið. Hann óskar upplýsinga um afdrif útbúnaðarins. Bandaríkjamenn fluttu úr Írak næstum tvö tonn af auðguðu úrani fyrr á árinu, en alþjóðakjarnorkumálastofnunin segir staðfest að að enn séu 550 tonn af geislavirkum efnum í landinu, og ekki sé hugað nægilega að öryggismálum í tengslum við efnin. El-Baradei telur alvarlegt ástand að skapast vegna eftirlitsleysis og sögusagnir séu á kreiki um að þjófar hafi hellt niður geislavirkum efnum og úraníum liggi þar sem auðvelt er fyrir alla að ná í það. El Baradei minnti öryggisráðið á að Írökum bæri enn skylda til að skýra frá öllum breytingum varðandi kjarnorkumál. Slíkt hafi ekki verið gert síðan í mars í fyrra.
Erlent Fréttir Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Erlent Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Innlent Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Innlent Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Innlent Fleiri fréttir Fimm glæpamenn fluttir frá Bandaríkjunum til Esvatíní Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Pútín lætur sér fátt um finnast Ekkja Navalní mótmælir tónleikum „náins vinar“ Pútín Leynd aflétt af leynilegri áætlun um móttöku Afgana Fyrirætlanir um búðir í Rafah vekja ágreining Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Hótar Pútín með tollum ef friður næst ekki á fimmtíu dögum Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart „Tæknivilla“ hafi valdið árás á fólk sem var að sækja sér vatn Segjast hafa „útrýmt“ banamönnum ofurstans Gisèle Pelicot sæmd æðstu heiðursorðu Frakka Hvetja foreldra til að bólusetja börnin sín eftir andlát vegna mislinga Reyna aftur að sigla til Gasa Veita yfirráðasvæði Frakklands meira sjálfstæði Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Fjórir látnir eftir gríðarstóra loftárás Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Sjá meira