Lífið

Fegurðardrottning á nærbrók

Fegurðardrottningar draga jafnan að sér athygli manna. Það getur komið sér illa þegar eitthvað fer úrskeiðis, eins og hjá Jennifer Hawkins sem krýnd var ungfrú alheimur fyrr á árinu. Á tískusýningu í Sydney í gær datt pilsið sem hún var að sýna hreinlega í sundur, svo að hún stóð eftir á nærbrókinni einni fata. Hawkins flissaði og hljóp í felur og sagði síðar í viðtölum við fjölmiðla að hún sæi eftir því að hafa ekki verið í meira spennandi nærbuxum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.