Sægarpur flýr til Noregs 3. ágúst 2004 00:01
Hafsteinn Jóhannsson, kafari frá Akranesi, lauk ekki hringsiglingu sinni um landið á seglskútunni Eldingu. Hann lagði upp í ferðina frá Kópavogi þann 18. júní sl. og sigldi vestur fyrir land. Þegar kom á Seyðisfjörð um verslunarmannahelgina bentu tollayfirvöld honum á að hann væri kominn þrjá daga fram yfir þann tíma sem heimilt væri að vera með skútuna hér á landi án þess að greiða af henni toll. Hafsteinn hefur síðustu áratugi verið búsettur í Noregi, en þar smíðaði hann skútuna sjálfur. "Þú mátt aldrei vera hér með bíl eða skemmtibát lengur en í mesta lagi eitt ár tollfrjálst," sagði Jóhann Freyr Aðalsteinsson, deildarstjóri tollgæslunnar á Seyðisfirði og staðfesti að Hafsteini hafi verið bent á að hann væri kominn fram yfir þann tíma. Hafsteinn hélt til Færeyja frá Höfn í Hornafirði á mánudaginn, en þaðan siglir hann til Hjaltlandseyja og svo til Noregs þar sem skútan verður geymd næsta árið. Valdimar I. Sigurjónsson, sem var samferða Eldingu í litlum rauðum hraðbáti úr plasti á siglingunni umhverfis landið, lenti svo í hrakningum á leiðinni frá Höfn í Hornafirði þegar hann var orðinn einn. Björgunarbáturinn Þór frá Vestmannaeyjum tók Valdimar í tog til Eyja aðfararnótt sunnudagsins var. Þar bíður hann nú hagstæðari veðurskilyrða áður en hann heldur áfram för sinni á hraðbátnum til Þorlákshafnar. Þegar Hafsteinn lagði upp í ferðina sagði hann í viðtali við Fréttablaðið að hann hygðist jafnvel hætta siglingum og ferðin yrði hugsanlega hans síðasta. Hafsteinn ánafnaði Byggðasafninu á Akranesinu seglskútuna árið 1993, en í gjafabréfinu kemur fram að hann hafi umráð yfir skútunni þar til hann vill skila henni. Nú er útlit fyrir að bið verði á þeim skilum og á því að Hafsteinn láti af siglingum, a.m.k. þar til gengið hefur verið frá því með hvaða hætti skútan verður flutt inn í landið og hún verðmetin. Frægasta sigling Hafsteins var þegar hann sigldi Eldingunni einn síns liðs umhverfis hnöttinn árið 1991. Þá sigldi hann viðstöðulaust í 241 dag, alls 25 þúsund sjómílur og er hann eini Norðurlandabúinn sem hingað til hefur afrekað slíka siglingu.
Fréttir Innlent Mest lesið Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Innlent Á leið til Íslands átta vikum eftir slysið Innlent Féll allt að tuttugu metra við foss á Snæfellsnesi Innlent „Ég hef aldrei séð svona samninga“ Innlent Kettir drápust á meðan eigandinn var á ferðalagi Innlent Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Innlent Logar í yfirgefnum bústað við Elliðavatn Innlent Kominn undan feldi og svarið er nei Innlent Sömdu um reglulegar samfarir í ár eftir sambúðarslit Innlent Bæjarstjórinn einn á móti stækkun friðlýsingar Gróttu og Seltjarnar Innlent Fleiri fréttir Vildi fá hestinn endurgreiddan vegna aukatannar Viðræður við Klíníkina, barátta stórvelda og Breiðholt Got Talent Óðinn Svan leiðir L-listann Siguðu lögreglu á sofandi fastakúnna „Ég hef aldrei séð svona samninga“ Tveir veiðimenn fengu tvær milljónir frá Hval Boðar tímabundna heimild svo unnt sé að senda erlenda fanga fyrr úr landi Kominn undan feldi og svarið er nei Féll allt að tuttugu metra við foss á Snæfellsnesi Bíða enn gagna mánuði frá upphafi rannsóknar Gagnrýnin byggi „að miklu leyti á misskilningi“ Framlag Íslands mun minna en annarra Norðurlanda Á leið til Íslands átta vikum eftir slysið VG vex og býður á stefnumót og Vor til vinstri leitar að fólki Allt rykbindiefni búið Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Bruninn látinn klára sig og vettvangur afhentur lögreglu Framlag Íslands hlutfallslega lítið og svifrykið hrellir borgarbúa Dorrit líkaði aldrei við „slepjulegan“ Epstein Tveggja bíla árekstur á Hellisheiði Fá sálfræðitíma en vilja bætur Yngra fólk líklegra til að strengja áramótaheit Kettir drápust á meðan eigandinn var á ferðalagi Ekki innritað í fjóra leikskóla í Reykjavík í haust Logar í yfirgefnum bústað við Elliðavatn Bæjarstjórinn einn á móti stækkun friðlýsingar Gróttu og Seltjarnar Líkamsárásir, þjófnaðir og fíkniefnabrot Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Ósammála um að það sé kostur að vera formaður utan þings Tengslanet veikara og andleg líðan verri í dag en fyrir rýmingu Sjá meira