Jón Gnarr og Ingvar lægstir 3. ágúst 2004 00:01
Eiður Smári Guðjohnsen er með ríflega 200 sinnum hærri laun en faðir sinn, Arnór, sem er meðal tekjulægstu Íslendinga í úttekt Frjálsrar verslunar. Þar á meðal eru einnig landsþekktir og jafnvel heimsþekktir leikarar. Þessi árlega samantekt er byggð á álögðu útsvari eins og það birtist í álgagningarskrám. Tölurnar eru skattskyldar tekjur einstaklinga á árinu 2003, en þurfa ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Lægst launaði alþingismaðurinn er Gunnar Örn Örlygsson, með 270 þúsund krónur, en hann tók sæti síðastur nýliða á þingi í fyrra vegna afplánunar dóms vegna brota á kvótalögum. Annar nýliði, Ágúst Ólafur Ágústsson Samfylkingunni, er með 297 þúsund krónur en sýnu meira hafði Framsóknarnýliðinn Dagný Jónsdóttir í fyrra, 375 þúsund krónur. Lægstur presta er Pétur Þorsteinsson, Óháða söfnuðinum, með 227 þúsund krónur. Nokkrir framkvæmdastjórar eru undir 200 kallinum, sem dæmi Sverrir Berg Steinarsson, framkvæmdastjóri Skífunnar, með 195 þúsund krónur. Meðal embættismanna er áberandi lægst launaðastur Vilhjálmur Egilsson, ráðuneytisstjóri í Sjávarútvegsráðuneytinu, með 199 þúsund krónur. Sveinbjörn Kristjánsson, fyrrverandi aðalgjaldkeri Símans sem sveik út 260 milljónir króna frá fyrirtækinu, var með 187 þúsund krónur á mánuði í fyrra, samkvæmt Frjálsri verslun. Bakkavararbræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir eru lægstir athafnamanna, með 100 þúsund krónur á mánuði, en þeir hafa verið búsettir í London í tvö ár þar sem þeir telja fram meginhluta tekna sinna. Af íþróttamönnum er Arnór Guðjohnsen, fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu, með 113 þúsund krónur, en til samanburðar má geta þess að Eiður Smári sonur hans þénar tæpar þrjátíu milljónir króna á mánuði fyrir að spila með Chelsea. Meðal hæst launuðu fjölmiðlamanna eru Páll Magnússon, dagskrárstjóri Stöðvar 2, og Gunnar Smári Egilsson, ristjóri Fréttablaðsins, en þeir eru sitthvoru megin við milljón á mánuði, þótt Styrmir Gunnarsson ritstjóri Morgunblaðsins gnæfi hátt yfir þá sem aðra með tæpar 1,8 milljón á mánuði. Neðarlega á listanum er hins vegar Edda Andrésdóttir, fréttaþula á Stöð 2, með 216 þúsund krónur, Baldvin Þór Bergsson, íþróttafréttamaður hjá Ríkisútvarpinu, með 204 þúsund krónur en lægstur er Páll Baldvin Baldvinsson, fyrrverandi dagskrárstjóri Stöðvar 2, með 105 þúsund krónur. Lægstir allra eru þó leikararnir Jón Gunnar Kristinsson, betur þekktur sem Jón Gnarr, með aðeins 74 þúsund krónur á mánuði og Ingvar E. Sigurðsson sem hefur verið að vinna hvern leiksigurinn á fætur öðrum á erlendri grund, með aðeins 67 þúsund krónur.
Fréttir Innlent Mest lesið Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Innlent Á leið til Íslands átta vikum eftir slysið Innlent Féll allt að tuttugu metra við foss á Snæfellsnesi Innlent „Ég hef aldrei séð svona samninga“ Innlent Kettir drápust á meðan eigandinn var á ferðalagi Innlent Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Innlent Logar í yfirgefnum bústað við Elliðavatn Innlent Kominn undan feldi og svarið er nei Innlent Sömdu um reglulegar samfarir í ár eftir sambúðarslit Innlent Bæjarstjórinn einn á móti stækkun friðlýsingar Gróttu og Seltjarnar Innlent Fleiri fréttir Vildi fá hestinn endurgreiddan vegna aukatannar Viðræður við Klíníkina, barátta stórvelda og Breiðholt Got Talent Óðinn Svan leiðir L-listann Siguðu lögreglu á sofandi fastakúnna „Ég hef aldrei séð svona samninga“ Tveir veiðimenn fengu tvær milljónir frá Hval Boðar tímabundna heimild svo unnt sé að senda erlenda fanga fyrr úr landi Kominn undan feldi og svarið er nei Féll allt að tuttugu metra við foss á Snæfellsnesi Bíða enn gagna mánuði frá upphafi rannsóknar Gagnrýnin byggi „að miklu leyti á misskilningi“ Framlag Íslands mun minna en annarra Norðurlanda Á leið til Íslands átta vikum eftir slysið VG vex og býður á stefnumót og Vor til vinstri leitar að fólki Allt rykbindiefni búið Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Bruninn látinn klára sig og vettvangur afhentur lögreglu Framlag Íslands hlutfallslega lítið og svifrykið hrellir borgarbúa Dorrit líkaði aldrei við „slepjulegan“ Epstein Tveggja bíla árekstur á Hellisheiði Fá sálfræðitíma en vilja bætur Yngra fólk líklegra til að strengja áramótaheit Kettir drápust á meðan eigandinn var á ferðalagi Ekki innritað í fjóra leikskóla í Reykjavík í haust Logar í yfirgefnum bústað við Elliðavatn Bæjarstjórinn einn á móti stækkun friðlýsingar Gróttu og Seltjarnar Líkamsárásir, þjófnaðir og fíkniefnabrot Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Ósammála um að það sé kostur að vera formaður utan þings Tengslanet veikara og andleg líðan verri í dag en fyrir rýmingu Sjá meira