Lífið

Lou Reed kominn til landsins

Hinn heimsþekkti tónlistarmaður Lou Reed kom til landsins í dag. Hann setti á sig hettu og sólgleraugu þegar hann gekk út úr tollinum í Leifsstöð og fór umkringdur lífvörðum beint upp í sendiferðabíl ásamt fylgdarliði og vildi ekkert tjá sig við fjölmiðla. Lífverðirnir gættu tónlistarmannsins vel og veittust að ljósmyndara Víkurfrétta sem var á staðnum, gripu í myndavélina hans og ýttu við honum. Lou Reed heldur tónleika í Laugardalshöll á föstudag.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.