Sport

Heiðar Davíð sigraði í Leirunni

Heiðar Davíð Bragason sigraði í síðustu umferð Toyotamótaraðarinnar í golfi en keppt var í Leirunni um helgina. Heiðar Davíð sigraði Björgvin Sigurbergsson í bráðabana en þeir urðu jafnir, léku 36 holur á átta höggum undir pari. Í kvennaflokki sigraði Ragnhildur Sigurðardóttir, lék á 147 höggum og varð tveimur höggum á undan Ólöfu Maríu Jónsdóttur sem var önnur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×