Eiður íþróttamaður ársins 28. desember 2004 00:01 "
Ég lít svo á að þetta sé stærsti titill sem íþróttamaður á Íslandi getur fengið og það er virkilega gaman að hljóta hann," sagði Eiður Smári Guðjohnsen, knattspyrnumaður í Chelsea og fyrirliði íslenska landsliðsins, í samtali við Fréttablaðið í kvöld. Eiður bar sigur úr býtum í kjöri Fréttablaðsins og Vísis um íþróttamann ársins 2004. Rúmlega 3.500 manns tóku þátt í kosningu um íþróttamann ársins á íþróttavef Vísis sem stóð yfir í 2 vikur, frá 8. til 22. desember. Eiður Smári hlaut 44% atkvæða og hafði betur eftir harða baráttu við sundkonuna Kristínu Rós Hákonardóttur sem hlaut 36% atkvæða. Eins og tölurnar gefa til kynna höfðu þau mikla yfirburði í kjörinu. "Þetta er vissulega mikill heiður. Ég reyni að vera góður sendiherra fyrir Ísland og það er mjög gaman að vita að þjóðin fylgist með manni," sagði Eiður jafnframt. Eiginkona Eiðs Smára, Ragnhildur Sveinsdóttir, og synir þeirra hjóna, Andri Lucas og Sveinn Aron, tóku við viðurkenningunni fyrir hönd Eiðs Smára í dag en hann fékk innrammaða mynd að gjöf sem sýnir hann skora framhjá Gianluigi Buffon í vináttuleik Íslendinga og Ítala í sumar. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi verðlaun eru afhent en þau munu verða veitt á hverju ári hér eftir. Sögðust synirnir vera afar stoltir af pabba sínum en þeir höfðu þó lítinn tíma til að fylgjast með honum í leiknum gegn Portsmouth í kvöld þar sem Sveinn Aron var í eldlínunni með liði HK í jólamóti Sparisjóðs Kópavogs, sem HK og Breiðablik halda í sameiningu ár hvert. Spurður um hvort hann ætli að reyna að feta í fótspor pabba þegar hann yrði eldri var Sveinn Aron ekki að spara stóru orðin: "Ég ætla að verða betri," sagði hann og það án þess að blikna. Óhætt er að segja að Eiður Smári sé vel að titlinum kominn. Hann átti fast sæti í liði Chelsea eftir því sem leið á tímabilið í fyrra og átti stóran þátt í því að koma liðinu alla leið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu ásamt því að hjálpa liðinu til að ná 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Í ár hefur Eiður Smári fest sig í sessi sem framherji númer eitt hjá þessu eina stærsta liði Evrópu, sem situr í augnablikinu í efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Íslenski boltinn Menning Mest lesið Þóra grætur í koddann ef Þorsteinn verður áfram með liðið Fótbolti Segir dóttur sína hafa gert mistök með því að velja íslenska landsliðið Fótbolti Mátti ekki kaupa íbúð Babe Ruth Sport „Þetta snýst ekki bara um Sveindísi og Karólínu“ Fótbolti Dagskráin í dag: Golf og aftur golf Sport Hneig niður tvisvar á risamóti í golfi Golf Viðurkenndi sök og má ekki keppa í CrossFit í fjögur ár Sport Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Wenger á allt annarri skoðun en Klopp Fótbolti Fleiri fréttir Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka EM í dag: Nóg komið af leiðindum, kveðjustund og Copacabana „Þetta snýst ekki bara um Sveindísi og Karólínu“ Sjáðu þáttinn um N1 mótið: Sprungnar vindsængur, lukkuljón og Ronaldo hárgreiðsla Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Ísak Snær lánaður til Lyngby Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Arsenal og Liverpool að slá heimsmetið Þóra grætur í koddann ef Þorsteinn verður áfram með liðið Viðurkenndi sök og má ekki keppa í CrossFit í fjögur ár Segir dóttur sína hafa gert mistök með því að velja íslenska landsliðið Hneig niður tvisvar á risamóti í golfi Wenger á allt annarri skoðun en Klopp United leitar að yfirmanni leikmannakaupa Mátti ekki kaupa íbúð Babe Ruth Dagskráin í dag: Golf og aftur golf Skýrsla Arons: Stórum spurningum þarf að svara „Þegar við spilum svona þá uppskerum við yfirleitt“ Sveindís: Maður vinnur ekki leiki nema að skora mörk „Það var köld tuska í andlitið“ Glódís: „Gríðarlega erfitt að sitja með þá tilfinningu eftir mót“ Dagný: Veit ekkert hvað ég er að fara að gera Uppgjörið: Valur - Flora 3-0 | Valsmenn í góðri stöðu Vill halda áfram: „Tel mig hafa getuna í það“ Einkunnir Íslands: Sveindís langbest Twitter yfir leiknum gegn Noregi: Vonleysi eftir erfitt mót Dramatískt jafntefli sendir heimakonur í átta liða úrslit Ítalskur deildarleikur í Ástralíu í febrúar? „Við erum að gera eitthvað rétt“ Þrjár breytingar: Katla fær stórt tækifæri í lokaleik Íslands á EM Sjá meira