Sport

27 fengu atkvæði í kjörinu í ár

Eiður Smári Guðjohnsen var í kvöld valinn Íþróttamaður ársins 2004 hjá Samtökum Íþróttafréttamanna og varð þar með fyrsti knattspyrnumaðurinn í 15 ár til að hljóta þessa viðurkenningu eða síðan faðir hans Arnór Guðjohnsen lyfti bikarnum 1987. Stangarstökkkonan Þórey Edda Elísdóttir varð í öðru sæti í kjörinu og þriðji varð fimleikmaðurinn Rúnar Alexanderson. 27 íþróttamenn og konur fengu atkvæði í kjörinu að þessu sinni. Eiður Smári varð í öðru sæti í kjörinu í fyrra en fékk nú 83 fleiri atkvæði en Þórey Edda Elísdóttir en aftur munaði aðeins þremur atkvæðum á Rúnari Alexanderssyni og Kristínu Rós Hákonardóttur í þriðja og fjórða sæti. Eiður Smári er fimmti knattspyrnumaðurinn sem er kosinn íþróttamaður ársins af Samtökum íþróttafréttamanna en hinir eru Guðni Kjartansson (1973), Ásgeir Sigurvinsson (1974 og 1984), Jóhannes Eðvaldsson (1975) og svo faðir hans Arnór Guðjohnsen (1987). Aðeins einir feðgar hafa hlotið styttuna áður en Vilhjálmur Einarsson hefur unnið titilinn oftast allra eða fimm sinnum og sonur hans Einar var síðan þrisvar sinnum kjörinn Íþróttamaður ársins. Þessi fengu stig í kjörinu að þessu sinni: 1. Eiður Smári Guðjohnsen 329 2. Þórey Edda Elísdóttir 246 3. Rúnar Alxandersson 162 4. Kristín Rós Hákonardóttir 159 5. Ólöf María Jónsdóttir 127 6. Birgir Leifur Hafþórsson 100 7. Ólafur Stefánsson 94 8. Jón Arnór Stefánsson 43 9. Hermann Hreiðarsson 25 10. Heimir Guðjónsson 16 11-13. Jón Oddur Halldórsson 9 11-13. Gunnar Örn Ólafsson 9 11-13. Margrét Lára Viðarsdóttir 9 14-15. Edda Lúvísa Blöndal 8 14-15. Jakob Jóhann Sveinsson 8 16-18. Guðrún Gunnarsdóttir 6 16-18. Ragnheiður Ragnarsdóttir 6 16-18. Róbert Gunnarsson 6 19. Guðmundur Stephensen 5 20-21. Laufey Ólafsdóttir 4 20-21. Rúnar Jónsson 4 22-23. Gylfi Einarsson 3 22-23. Heiðar Helguson 3 24-25. Heiðar Davíð Bragason 2 24-25. Kristjana Sæunn Ólafsdóttir 2 26-27. Björn Jónsson 1 26-27. Helena Sverrisdóttir 1



Fleiri fréttir

Sjá meira


×