Allt hægt með góðu sjálfstrausti 13. október 2004 00:01 "
Ég einbeiti mér að mínu starfi með U21 árs liðinu og vona að draumurinn um að komast í A-landsliðið komi síðar," segir Hannes Þ. Sigurðsson, leikmaður með Víking í Noregi, en hann hefur staðið sig vonum framar með íslenska U21 árs landsliðinu og hefur skorað öll sex mörk liðsins í riðlakeppninni. Spurningar hafa vaknað upp hvort ekki sé þörf fyrir slíkan mann í aðalliði Ásgeirs og Loga en Hannes segir það ekkert sérstakt keppikefli eins og sakir standa. Hannes spilaði afbragðsvel ásamt liðinu öllu þegar góður 3-1 sigur vannst á U21 árs liði Svía í Grindavík á þriðjudaginn var. "Heppni er alltaf hluti af þessu en gegn Svíum var allt liðið að spila vel og þess vegna fékk ég góð tækifæri til að skora," segir Hannes, en liðið hefur nú unnið tvo leiki og tapað tveimur. "Þetta var bara okkar dagur. Við vorum allir frískir og náðum þeim leik sem við vildum. Létum þá lítið stjórna spilinu og niðurstaðan var okkur í hag. Við vissum alltaf að okkar lið var ekki verra en það sænska og þegar sjálfstraustið er í góðu lagi eins og þarna var er allt hægt." Hannes hefur leikið fyrir norska liðið Víking frá Stafangri um tíma en samningur hans við liðið rennur út í desember. Hann vill ekki gefa upp hvað tekur við eftir það en hann hefur fengið færri tækifæri með Viking en hann vonaðist eftir. "Ég hef ekki fengið eins mörg tækifæri og ég vildi. Þeir vilja þó hafa mig áfram og hafa boðið mér áframhaldandi samning en ég ætla að taka mér góðan tíma til að taka ákvörðun." Hannes vill ekki gefa upp hvort önnur félög hafi sóst eftir hæfileikum hans en víst er að sex mörk í tveimur U21 árs landsleikjum auka möguleika á að fleiri félög hugsi sér gott til glóðarinnar. "Ég er ekkert að flýta mér að taka ákvörðun. Það hafa orðið breytingar hjá Víking eftir að Roy Hodgson tók við þjálfun liðsins og verið getur að ég fái fleiri tækifæri en verið hefur en slíkt mun að sjálfsögðu hafa áhrif á ákvörðun mína þegar þar að kemur." Lið Víking er í botnbaráttunni í norsku deildinni en þarf að líkindum aðeins einn sigur í þeim fjórum leikjum sem eftir eru til að bjarga sér af hættusvæðinu.
Íþróttir Mest lesið Stuðningsmenn Blika og Víkinga spyrja fyrir hverja leikurinn sé Íslenski boltinn UEFA lofar að hafa engin drykkjarhlé Fótbolti Bauluðu á verðandi US Open meistara Golf Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Körfubolti Einum mánuði yngri en Eiður Smári Íslenski boltinn Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Enski boltinn Karlar sem skulda meðlag í Argentínu mega ekki horfa á Messi á HM Fótbolti Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Enski boltinn Bröndby-bullur ráðast ekki bara á Víkinga heldur einnig á konur í hjólastól Fótbolti Grænhöfðaeyjar komu aftur á óvart og sögulegt hjá Mo Salah og félögum Fótbolti Fleiri fréttir Þjálfari Íraks um Mbappé: Bað um að fá að spila með þrjá markverði Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Ein vinsælasta golf YouTube-stjarna heims í Vestmannaeyjum Sakar þýska landsliðið um óheiðarleika Messi er ekki búinn að ná Mörtu Goðsögnin fær að keppa á Wimbledon-mótinu Einum mánuði yngri en Eiður Smári Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Kom pabba sínum algjörlega á óvart á átjándu holunni á US Open Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Maður dagsins: Fyrirliði Orra úr aðhlátursefni í hetju Sjáðu þrennu Elíasar, mark þess nýfermda og svar Eyjamanna UEFA lofar að hafa engin drykkjarhlé Kóngafólkið dansaði í klefa Curacao Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Lést uppi á hótelherbergi í draumaferð sinni á HM Kristín setti heimsmet og vann brons á HM: „Stolt af sjálfri mér“ Stuðningsmenn Blika og Víkinga spyrja fyrir hverja leikurinn sé Bröndby-bullur ráðast ekki bara á Víkinga heldur einnig á konur í hjólastól Karlar sem skulda meðlag í Argentínu mega ekki horfa á Messi á HM Grænhöfðaeyjar komu aftur á óvart og sögulegt hjá Mo Salah og félögum Bauluðu á verðandi US Open meistara Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Dagskráin í dag: KRÍA og Besta deild kvenna „Loksins næ ég að skora þrennu“ „Vorum litlir í okkur á stóra sviðinu“ „Mikil vinna sem liggur að baki svona sigri“ Wyndham Clark er sigurvegari U.S. Open Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Sjá meira