15 handteknir í Egyptalandi 11. október 2004 00:01
Fimmtán hafa verið handteknir vegna hryðjuverkaárásanna í Egyptalandi í síðustu viku, þar sem á fjórða tug manna lést. Karlmaður hefur játað að hafa selt sprengiefni rétt fyrir árásirnar. Að minnsta kosti 34 létust í árásinni og á annað hundrað særðust í árásum á ferðamannastaði á Sínaí skaga í Egyptalandi, flestir ísraelskir ferðamenn. Tveir hópar hafa lýst verknaðinum á hendur sér, en fullyrðingar þeirra hafa ekki fengist staðfestar og tilgátur er uppi um að al-Qaeda hafi verið að verki, enda beri árásin ekki merki Palestínskra hryðjuverkamanna. Stjórnendur rannsóknarinnar telja að hryðjuverkamennirnir hafi hugsanlega komist á staðinn með hraðbátum frá Sádi-Arabíu eða Jórdaníu. Lögregla hefur yfirheyrt á sjötta hundrað manns, og handtekið fimmtán. Einn af þeim hefur nú játað að hafa selt sprengiefni rétt fyrir árásirnar, og er kaupandans nú leitað. Enn er leitað í rústum Taba Hilton hótelsins, sem varð hvað verst úti í árásunum, en útilokað er talið að nokkur finnist á lífi. Vegna árásanna hafnaði Aríel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, í morgun ráðleggingum herhöfðingja sinna um að draga herinn frá flóttamannabúðum Palestínumanna á Gazaströndinni. Heimildir Reuters fréttastofunnar segja að Sharon vilji ekki sýna nein veikleikamerki í kjölfar árásanna, og með því blíðka ríkisstjórn sína, en seinna í dag mun hann ávarpa þingið og reyna að draga úr andstöðu við ákvörðun sína um að flytja allar landnemabyggðir gyðinga frá Gazaströndinni.
Erlent Fréttir Mest lesið „Þeir eru að gera svona hluti sem maður myndi bara sjá í bíómyndum“ Innlent Notaði fjóra hnífa til að verða móður sinni að bana: „Gakktu í bæinn, hún er dauð“ Innlent „Við höfum varað við ástandinu árum saman“ Innlent Tenerife-veður víða á landinu Innlent Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart Erlent Erfitt að geta ekkert gert nema horfa á kofann brenna Innlent „Við erum bara happí og heimilislaus“ Innlent Veiðigjaldaumræðum lokið: Málið verði ríkisstjórninni að falli Innlent Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Erlent Oscar einn af fimmtíu sem fær íslenskan ríkisborgararétt Innlent Fleiri fréttir Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart „Tæknivilla“ hafi valdið árás á fólk sem var að sækja sér vatn Segjast hafa „útrýmt“ banamönnum ofurstans Gisèle Pelicot sæmd æðstu heiðursorðu Frakka Hvetja foreldra til að bólusetja börnin sín eftir andlát vegna mislinga Reyna aftur að sigla til Gasa Veita yfirráðasvæði Frakklands meira sjálfstæði Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Fjórir látnir eftir gríðarstóra loftárás Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Sjá meira