Eins sjarmerandi og búist var við 25. ágúst 2004 00:01
Þær urðu nokkuð undrandi í gær, konurnar í Kirsuberjatrénu, þegar Bill Clinton mætti í búðina og gerði sér lítið fyrir og keypti af þeim nokkrar skálar. "Hann er eins sjarmerandi maður og ég bjóst við," segir Ólöf Erla Bjarnadóttir sem var að afgreiða í búðinni og viðurkennir að hún sé aðdáandi þessa fyrrverandi Bandaríkjaforseta, hvort tveggja hvað pólitík og sjarma snertir. "Ég vissi ekkert að hann var að koma. Það kemur hingað blökkukona, svona formlega klædd og lítur inn í búðina. Sem betur fer var enginn inni í búðinni á þeim tíma. Svo brosti hún og hann kom siglandi inn. Þetta var voða gaman og óvænt þegar kemur svona heimsfrægur maður sem ég stend augliti til auglitis við." Í Kirsuberjatrénu eru tíu hönnuðir sem sem vinna allir hver með sitt efni og því segir Ólöf að það sé eðiliegt að beina fólki í búðina. Í þetta sinn keypti Clinton fimm skálar eftir Valdísi Harrysdóttur, auk þess sem einn úr fylgdarliði hans keypti tvær skálar eftir sama hönnuð. "Þær eru úr pappamassa með örþunnum sneiðum af grænmeti sem gerir þær litríkar og fallegar. Þær eru alveg einstakar, ég hef ekki séð neinn annan gera svona. Clinton fannst margt hérna fallegt þrátt fyrir að stoppa ekki lengi við í búðinni. Hann stoppaði alveg ákveðið við þetta. Svo tók hann í höndina á mér. Það nægir mér alveg." Fréttablaðið hefur einnig heyrt að Hillary Clinton hafi fengið gjöf frá forsætisráðuneytinu sem keypt var í Kirsuberjatrénu og var það taska úr roði.
Menning Mest lesið Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Lífið „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ Tíska og hönnun Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Lífið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Lífið Þorsteinn Leó orðinn pabbi Lífið Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Menning Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið Fleiri fréttir Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Sjá meira