Lífið

Hár á skalla Berlusconi

Ítalskur læknir hefur ljóstrað því upp, að hafa grætt hár á skalla Silvios Berlusconis, forsætisráðherra Ítalíu. Það vakti athygli fjölmiðla að Berlusconi sást með forláta skuplu á höfðinu á meðan heimsókn Tonys Blairs stóð fyrr í vikunni, og gátu gárungar sér til um að hárígræðsla væri ástæðan. Nú er ljóst að sagan er ekkert grín, heldur lét Berlusconi í raun og sann græða hár á skallann. Fyrr á þessu ári hvarf hann almenningi sjónum í rúman mánuð, og þegar hann birtist á ný virtist fríið varð ljóst að hann hafði farið í andlitslyftingu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.