Jórunn Viðar með lag á Medulla 13. október 2005 14:32 "
Það er búið að syngja þetta lag sundur og saman og sérstaklega hefur fólk rifið það í sig í Söngskólanum í Reykjavík," segir tónskáldið Jórunn Viðar um lag sitt Vökuró en lagið sem hefur verið sungið af mörgum stórsöngvurum í gegnum tíðina er nú að finna á nýjustu plötu Bjarkar Guðmundsdóttur. "Ég fékk beiðni frá Ásmundi í Smekkleysu um hvort Björk mætti syngja lagið á nýrri plötu, svo hringdi hún í mig eftir að lagið var tilbúið og spurði mig hvernig mér líkaði. Ég gaf henni þá samþykki mitt enda fer Björk afskaplega vel með lagið," segir Jórunn sem er sérstaklega ánægð með endinn á laginu hjá Björk. "Það skiptir miklu máli hvernig lagið endar því það er svo mikill stígandi í þessu fallega ljóði Jakobínu og endirinn er alveg grátsætur. Mér finnst líka ótrúlegt að Björk notist eingöngu við raddir í laginu því þegar maður hlustar á lagið finnst manni eins og notast sé við hljóðfæri." Jórunn segist sérstaklega muna eftir Vökuró í flutningi Þuríðar Pálsdóttur. "Þuríður sagði alltaf á sínum tíma að þetta væri uppáhaldslagið hennar og það er svolítið gaman að bera lagið saman í meðferð hennar og Bjarkar því þær eru svo ólíkar söngkonur." Jórunn nam tónsmíðar við Julliard-tónlistarskólann í New York á árunum 1943-45 og á að baki glæstan tónlistarferil. Björk hefur, eins og margir af hennar kynslóð, alist upp við lög hennar en meðal þekktustu laga Jórunnar eru Krummavísur, Mamma ætlar að sofna, Krumminn á skjánum, Kall sat undir kletti og jólalagið Það á að gefa börnum brauð. Þrátt fyrir að vera löngu komin á eftirlaunaaldurinn er hin áttatíu og fimm ára gamla Jórunn langt frá því að vera hætt að semja lög. "Ég er alltaf að semja. Maður losnar aldrei út úr þessu tónafangelsi og er lokaður inn í þessum hring," segir Jórunn glöð í bragði en það hlýtur að teljast mikill heiður fyrir hana að fá að vera með lag á plötu hjá einum heitasta tónlistarmanni heims. "Mér finnst gaman að ég hafi komið að gagni og er ánægð með að Björk hafi tekið mig með þrátt fyrir að ég sé svona miklu eldri en hún."
Menning Mest lesið Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Lífið „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ Tíska og hönnun Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Lífið Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Lífið Þorsteinn Leó orðinn pabbi Lífið „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Lífið Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Lífið Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Menning Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Lífið Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 Lífið Fleiri fréttir Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Þorsteinn Leó orðinn pabbi Versluðu sígarettur af rússneskum sjómönnum: „Þetta var bara eins og gull“ Jinny Lu er ljótasti hundur í heimi 2026 „Hver á eftir að vilja konu sem kúkar í poka?“ Jóhann Kristófer og Nadía Áróra slá sér upp Nicole birtir myndir úr Íslandsheimsókninni: „Við elskum ykkur Ísland!!“ Sögðu já þar sem ástarsagan hófst Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Sjá meira