Lífið

Travis Bickle besta andhetjan

Travis Bickle, persónan sem Robert De Niro lék í myndinni Taxi Driver, hefur verið kosinn besta and-hetja kvikmyndasögunnar. Hann var valinn af lesendum Totol film tímaritsins, segir á veffréttasíðu BBC. Taxi Driver er mynd eftir Martin Scorsese og var De Niro tilnefndur til óskarsverðlauna fyrir leik sinn í henni. Annar í röðinni er leigumorðinginn Leon, sem Jean Reno túlkar. Þriðji er karakter sem Michael Douglas túlkar í myndinni Falling Down. Fjórði er Harry Callahan úr Dirty Harry myndunum sem er leikinn af Clint Eastwood og sá fimmti Alex DeLarge leikinn af Malcom McDowell í hinni umdeildu mynd, A Clockwork Orange. Aðrir á topp tíu eru til dæmis Jack Carter, leikinn af Micheal Caine í myndinni Get Carter, og Mad Max, leikinn af Mel Gibson.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.