Lífið

Hefur slæm áhrif á frammistöðu

Knattspyrnustjarnan David Beckham hefur loks viðurkennt að fjölmiðlaumfjöllun um einkalíf sitt hafi haft slæm áhrif á frammistöðu sína á Evrópumótinu í knattspyrnu. Beckham, sem hingað til hefur kennt þjálfunaraðferðum hjá Real Madrid um slælega frammistöðu sína á Evrópumótinu, viðurkennir nú að hann hafi ekki náð að útiloka umfjöllun um einkalíf sitt frá knattspyrnuvöllunum í Portúgal í sumar. Fjölskyldulíf Beckhams er hins vegar með besta móti nú að sögn kappans, enda hafi synirnir Rómeó og Brooklyn nóg fyrir stafni og eiginkonunni Viktoríu líði vel í Madríd.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.