Skjár Einn sýnir 220 leiki 3. ágúst 2004 00:01
Skjár einn boðaði til blaðamannafundar í gærdag og kynnti hvernig staðið yrði að málum varðandi enska boltann sem stöðin tryggði sér nýverið sýningarréttinn á. Sýndir verða um 220 leikir frá ensku úrvalsdeildinni á komandi vetri og verða þeir allir í opinni dagskrá. Því má gera ráð fyrir að um 80 þúsund heimili komi til með að hafa aðgang að enska boltanum. Til að gera þetta mögulegt hefur Skjár Einn fengið fyrirtækin Actavis, Frjálsa fjárfestingarbankann, Icelandair og Visa, til samstarfs við sig. Þulir á leikjunum verða þeir Gunnar Helgason, leikari, Kristinn Kjærnested, framkvæmdastjóri hjá Atlantsskipum, áðurnefndur Snorri Már Skúlason og nafni hans, Snorri Sturluson, sem marga fjöruna hefur sopið. Þeim til aðstoðar verða knattspyrnumennirnir Guðmundur Benediktsson, Ríkharður Daðason og Þórhallur Dan Jóhannsson. Þá verða enskir þulir á einhverjum leikjum. Hinn kunni sjónvarpsmaður, Snorri Már Skúlason, hefur verið fenginn til að stýra þessu stóra verkefni og segir hann það bæði stórt og krefjandi en jafnframt mjög spennandi: "Útsendingarrétturinn frá ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu er meðal allra eftirsóttasta og jafnframt dýrasta sjónvarpsefni í heimi og við munum auðvitað kappkosta þess að gera þetta eins vel og mögulegt er." Skjár Einn mun að jafnaði sýna 6 leiki á viku. Á laugardögum klukkan 12.45, 15 og 17.15. Á sunnudögum klukkan 14 og 16.05. Þegar leikið er á mánudögum verður sá leikur sýndur með um það bil tveggja tíma seinkun. Upphitunarþættir verða fyrir leikina á föstudögum og laugardögum og á mánudögum verða öll mörk helgarinnar sýnd í sérstökum þætti sem bera mun nafnið, Þrumuskot
Enski boltinn Íslenski boltinn Mest lesið Gjörbreyttur Luka hefur tekið á því í ræktinni Körfubolti Arftakinn sagður koma frá Hlíðarenda Íslenski boltinn KR lætur þjálfarateymið fjúka Íslenski boltinn „Bara pæling sem kom frá Caulker“ Fótbolti Bönnuðu öllum leikmönnum liðsins að koma inn í landið Sport Uppgjörið: Stjarnan - Afturelding 4-1 | Snéru við dæminu manni fleiri Íslenski boltinn „Vorum búnir að vera miklu betri“ Fótbolti „Þurftum ekkert að vera að drífa okkur“ Fótbolti Donald Trump sást svindla á golfvellinum Golf Musk og Schwarzenegger sendu Hafþóri Júlíusi hamingjuóskir Sport Fleiri fréttir Arftakinn sagður koma frá Hlíðarenda Gjörbreyttur Luka hefur tekið á því í ræktinni „Bara pæling sem kom frá Caulker“ „Vorum búnir að vera miklu betri“ „Þurftum ekkert að vera að drífa okkur“ Uppselt á Evrópuleik KA á Akureyri Gæti enn spilað í úrvalsdeildinni eftir að hafa fallið þrívegis Markasúpur í „Íslendingaslögum“ KR lætur þjálfarateymið fjúka Uppgjörið: Stjarnan - Afturelding 4-1 | Snéru við dæminu manni fleiri Tómas Bent nálgast Edinborg Nýtt útlit hjá Guardiola Aflýstu æfingaferð eftir hræðilegar fréttir að heiman Nýtt undrabarn hjá Arsenal Flúraði sig til minningar um Jota Bönnuðu öllum leikmönnum liðsins að koma inn í landið Með átta mörk og sex stoðsendingar í sama leiknum Segja Jóhannes kosta tæpar tíu milljónir króna Flýr Ten Hag og semur við Sunderland Grét þegar hann var kynntur hjá nýju félagi Sjáðu Pedersen jafna metið og Kennie kremja hjörtu Víkinga NBA reynslubolti handtekinn fyrir ávísunarfals „Ef ég geri það ekki þá mun ég kannski sjá eftir því alla ævi“ Eir Norðurlandameistari en fékk of mikla hjálp til að fá metið Sú besta í áfalli og baðst afsökunar Siggi Raggi for holu í höggi á vellinum þar sem Íslandsmótið fer fram Brella Englendinga sem gæti hafa tryggt þeim EM-gullið Donald Trump sást svindla á golfvellinum Fékk meira að segja kveðju frá sínum helsta óvini Spilaði og varð Evrópumeistari fótbrotin Sjá meira