Innlent

170 kannabisplöntur í austurbænum

Hundrað og sjötíu kannabisplöntur fundust í morgun í húsnæði manns í Reykjavík, sem var eftirlýstur fyrir að skjóta úr haglabyssu á tvö hús á Reykhólum í Barðastrandasýslu. Hann var handtekinn ásamt ætluðum vitorðsmanni. Snemma á laugardagsmorgun skaut maðurinn að minnsta kosti tíu skotum úr haglabyssu í gegnum glugga og hurðir á tveimur húsum á Reykhólum, en sofandi fólk var í öðru þeirra. Ekki er enn vitað hvað manninum gekk til, en hann var í annarlegu ástandi að sögn lögreglu. Hann hvarf svo af vettvangi. Engin skipuleg leit var gerð að honum, en lögregla um allt land beðin að handtaka hann ef til hans sæist. Lögreglan í Reykjavík ákvað snemma í morgun að eigin frumkvæði að fara af fullum krafti í málið. Ásgeir Þór Ásgeirsson, aðalvarðstjóri lögreglunnar í Reykjavík sagði leitina hafa skilað árangur um ellefuleitið þegar maðurinn var handtekinn á gangi í húsnæði í Austurborginni. Við húsleit þar fundust síðan kannabisplönturnar. Einnig fannst þó nokkuð af græðlingum, en það er í fræjum plöntunnar sem sterkustu kannabisefnin eru. Ekki er hægt að áætla verðmæti efnanna en maðurinn hefur komið við sögu lögreglunnar áður.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×