Íslandsmótið í höggleik hafið 22. júlí 2004 00:01
Helena Árnadóttir, tvítug stúlka frá Akureyri, sló öllum bestu kvenkylfingum Íslands við á fyrsta degi Íslandsmótsins í höggleik á Garðavelli á Akranesi í gær. Helena, sem hefur ekki tekið þátt í Toyota-mótaröðinni á þessu tímabili vegna meiðsla, vann meistaramót Golfklúbbs Akureyrar með miklum yfirburðum um síðustu helgi og hélt uppteknum hætti á fyrsta degi Íslandsmótsins. Hún lék holurnar átján á 71 höggi eða einu höggi undir pari og hefur fimm högga forystu á næstu konur sem eru Tinna Jóhannsdóttir og Ólöf María Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Keili og Herborg Arnardóttir Golfklúbbi Reykjavíkur. Íslandsmeistarinn frá því í fyrra, Ragnhildur Sigurðardóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur er síðan einu höggi á eftir þeim þremur ásamt Nínu Björk Geirsdóttur úr Golfklúbbnum Kili og Þórdísi Geirsdóttur úr Golfklúbbnum Keili. Helena sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að hún hefði náð draumahring. "Það má eiginlega segja að allt hafi gengið upp í dag. Völlurinn var frábær, flatirnar æðislegar og ég spilaði mjög stöðugt allan tímann,"sagði Helena sem er, eins og fram kemur hér að ofan, nýstigin upp úr meiðslum. Hún sagðist ekki vera farin að hugsa mikið um sigur á mótinu enda væri það fullsnemmt en viðurkenndi þó að þessi árangur væri vonum framar og gefur henni byr undir báða vængi í framhaldinu. "Ég ætla að halda rónni. Auðvitað er pressa á mér en það er aðallega pressa sem ég set á sjálfa mig. Það eru þrír hringir eftir og því miður hefur enginn verið krýndur sem sigurvegari eftir fyrsta hring," sagði Helena. Birgir Leifur Hafþórsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, sem bar sigur úr býtum á Íslandsmótinu í höggleik í Vestmannaeyjum í fyrra, hefur forystu í karlaflokki eftir fyrsta dag. Hann lék holurnar átján á 68 höggum eða fjórum höggum undir pari, einu höggi minna en Örn Ævar Hjartarson úr Golfklúbbi Suðurnesja. Ólafur Már Sigurðsson úr Golfklúbbnum Keili og Rúnar Óli Einarsson úr Golfklúbbi Suðurnesja eru þremur höggum á eftir Birgi Leif.
Íþróttir Mest lesið Fáránleg hegðun á Hlíðarenda: Plastglas í höfuð og miðfingur á loft Fótbolti Bein útsending: Dagur eitt á heimsleikunum í CrossFit 2025 Sport Allt liðið gekk út á völl í Súperman búningum Fótbolti Alfreð og fleiri jálkar með óvænt félagaskipti yfir í Augnablik Íslenski boltinn Er Liverpool að styrkja rangan enda vallarins? Enski boltinn Netverslun Liverpool hrundi vegna álags Enski boltinn Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Enski boltinn Lýsir því hvernig Dahlmeier dó Sport Nýju leikmenn Liverpool komnir með númer Enski boltinn Gaf tannlækninum teinanna sína Fótbolti Fleiri fréttir „Sýna að maður eigi það skilið“ ÍBV fær liðsstyrk úr Laugardal Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Sigur í fyrsta leik hjá Jóhannesi Kristni Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Segir að þeim besta í heimi sé skítsama Má ekki æfa fyrr en hann léttir sig Álftanes bætir Bandaríkjamanni við hópinn Verstappen slekkur á öllum sögusögnunum Jóhannes ræddi ekki við Val: „Ef ég ætlaði að fara frá KR var það alltaf bara út“ Guðjón Valur orðaður við Kiel Bein útsending: Dagur eitt á heimsleikunum í CrossFit 2025 „Númer eitt, tvö og þrjú að knúsa þau sem mest“ Spilar með bestu frisbígolfspilurum heims Einvígið á Nesinu safnar í ár fyrir minningarsjóð Bryndísar Klöru Dönsk þrenna á Akureyri, dramatík í Víkinni og óheppni á Hlíðarenda Newcastle hafnar tilboði Liverpool Niko markahæstur og Gylfi stoðsendingahæstur í Sambandsdeildinni Jón Þór Evrópumeistari á nýju Íslandsmeti Fáránleg hegðun á Hlíðarenda: Plastglas í höfuð og miðfingur á loft Kristján hættur sem þjálfari Vals en Matthías verður áfram Sagðir vilja borga helminginn fyrir Isak í ár og hinn helminginn ári síðar Netverslun Liverpool hrundi vegna álags Gaf tannlækninum teinanna sína Skoraði ekki í leiknum en dómararnir skráðu samt á hana tvö mörk Orri Hrafn í KR og getur spilað í Eyjum Missti ömmu sína á sama degi og hún vann EM Lýsir því hvernig Dahlmeier dó Er Liverpool að styrkja rangan enda vallarins? Paquetá hreinsaður af ásökunum um veðmálasvindl Sjá meira