Lárus undir smásjánni í Þýskalandi 17. júlí 2004 00:01
Landsliðsmaðurinn Lárus Jónsson, sem lék með Hamri í Intersportdeildinni í körfuknattleik á síðasta tímabili, dvaldi í æfingabúðum í Bonn í Þýskalandi um síðustu helgi og stóð sig það vel að eitt þýskt lið í efstu deild sem og eitt spænskt lið hafa áhuga á því að fá hann í sínar raðir. Búðirnir sem Lárus dvaldi í um síðustu helgi kallast "Slammers" en þar koma saman 48 leikmönum víðs vegar úr heiminum og sýna sig fyrir framan útsendara fjölmargra liða. Jón Arnór Stefánsson og Logi Gunnarsson, sem báðir eru atvinnumenn í dag, Jón Arnór hjá Dallas Mavericks í NBA-deildinni go Logi hjá Giessen 49 ers í Þýskalandi, komu sér einmitt á kortið í þessum æfingabúðum. Lárus sagði aðspurður að honum hefði gengið vel í Bonn og nokkur lið hefðu sýnt sér áhuga. Eitt lið hefði þó sýnt meiri áhuga en önnur en það er þýska 1. deildarliðið Karlsruhe sem bauð honum til æfinga í vikunni. "Ég hitti þjálfara liðsins og ræddi nokkuð lengi við hann. Síðan fór ég á æfingu með liðinu og þar skoðaði aðstoðarþjálfarinn mig gaumgæfulega. Mér gekk nokkuð vel á æfingunni og eftir hana var mér var sagt að ég væri einn af þremur leikmönnum sem koma til greina hjá liðinu," sagði Lárus. Karlsruhe hafnaði í tíunda sæti þýsku 1. deildarinnar á síðasta tímabili og nýverið gekk Bandaríkjamaðurinn Derrick Allen, sem var lykilmaður í liði Keflavíkur á síðasta tímabili, í raðir félagsins. Lárus sagðist vera nokkuð bjartsýnn á að komast til Karlsruhe og vonaðist til að Allen myndi gefa sér góð meðmæli. Vikunni áður en Lárus fór til Bonn dvaldi hann í æfingabúðum í Palencia á Spáni og stóð sig það vel að hann vakti áhuga spænskra liða. "Umboðsmaður minn sagði mér að eitt spænskt lið vildi skoða mig betur þannig að ég ætla að sjá hvað gerist í Þýskalandi og spáni áður en ég ákvað eitthvað frekar. Ég ætla mér að vera búinn að ganga frá mínum málum í byrjun ágúst og þar sem ég hef stefnt að því að komast út í atvinnumennsku þá hef ég ekki talað við eitt einasta lið á Íslandi og veit í sjálfu sér ekkert hvað gerist ef ég fer ekki út," sagði Lárus Jónsson sem ætti þó ekki að vera í vandræðum með að finna sér lið í Intersportdeildinni ef útlöndin klikka.
Íþróttir Mest lesið Sturluð lokaumferð fyrir skiptingu: Hvaða lið enda fyrir ofan strik? Íslenski boltinn Stefnir á heimsmet og segist aldrei hafa verið í betra formi Sport Sjáðu mörkin úr stórsigrum Arsenal og Spurs og dramatíkina í Lundúnum Fótbolti Guðrún Karítas fjarri nýja metinu á sínu fyrsta HM Sport „Draumur síðan ég var krakki“ Fótbolti Dagskráin í dag: Manchester-slagur á sófasunnudegi Sport Ragnhildur endaði önnur eftir bráðabana Golf „Ég eiginlega bara trúi þessu ekki“ Fótbolti Vandræðalegt víti frá Messi Fótbolti De Bruyne og Højlund skoruðu gegn Albertslausu Fiorentina Fótbolti Fleiri fréttir Áfall fyrir Norðmenn: „Þetta var mun verra en ég hélt“ Vandræðalegt víti frá Messi Sturluð lokaumferð fyrir skiptingu: Hvaða lið enda fyrir ofan strik? Guðrún Karítas fjarri nýja metinu á sínu fyrsta HM „Draumur síðan ég var krakki“ Sjáðu mörkin úr stórsigrum Arsenal og Spurs og dramatíkina í Lundúnum Dagskráin í dag: Manchester-slagur á sófasunnudegi Stefnir á heimsmet og segist aldrei hafa verið í betra formi Ragnhildur endaði önnur eftir bráðabana „Ég eiginlega bara trúi þessu ekki“ De Bruyne og Højlund skoruðu gegn Albertslausu Fiorentina Fjórir markaskorarar er Bayern valtaði yfir Hamburger Meistararnir keyrðu yfir nýliðana í seinni hálfleik Mark Sveindísar duggði skammt Carvalho rændi stigi af Chelsea Endurkomusigur í ótrúlegum sjö marka leik Sævar hetjan í endurkomusigri Brann Arnór tryggði Norrköping stig í Íslendingaslag „Þess vegna unnum við“ „Langt frá því að vera eins og við eigum að vera“ Andrea skoraði sjö í öruggum sigri ÍR og nýliðarnir á toppnum Sigur í fyrsta leik Andra í enska boltanum Grótta og Ægir upp í Lengjudeildina Nýi maðurinn hetja Newcastle og skrautlegt sjálfsmark Leeds Spurs í engum vandræðum með tíu Hamra Fyrsta mark Ísaks í efstu deild Þýskalands Þórsarar upp í Bestu deildina en Selfoss féll Heimsmethafinn hélt út Uppgjörið: Valur - Haukar 21-24 | Bikarmeistararnir skákuðu Íslandsmeisturunum Sjá meira