UMSK vann sigur á Landsmótinu 11. júlí 2004 00:01
UMSK, eða Ungmennasamband Kjalarnesþings, varð sigurvegari á 24. landsmóti UMFÍ sem lauk á Sauðárkróki í gær. UMSK hafði betur eftir harða keppni við heimamenn í UMSS og hið sigursæla Hérðassambands Skarphéðins. HSK endaði nú í þriðja sæti eftir að hafa verið með tveggja efstu síðan 1949 þar af 15 sinnum í efsta sæti. Íþróttabandalag Reykjavíkur endaði í fjórða sætinu. Það fengu alls 25 ungmennafélög stig á landsmótinu að þessu sinni. Það má því segja að UMSK hafi fengið gott veganesti með sér heim því næsta landsmót fer einmitt fram á heimavelli þeirra í Kópavogi. Þetta var í fjórða skiptið sem UMSK ber sigur úr býtum á mótinu en Kjalnesingar unnu einnig 1940, 1975 og svo árið 1990 þegar þeir héldu landsmótið síðast en þá fór það fram í Mosfellsbænum. Á þriðja þúsund keppendur tóku þátt í mótinu sem tókst mjög vel í alla staði. Mótssvæðið á Sauðárkróki var tilkomumikið með mikilli fánaborg íslenska fánans, Hvítbláans, fánum sambandsaðila, styrktaraðila og annarra. Áætlað er að fánarnir séu á um þriðja hundrað, fyrir utan þá fána sem flaggað er í heimagörðum á Sauðárkróki. Sauðárkróksvöllur er stórglæsilegur, enda hefur sveitarfélagið Skagafjörður staðið að uppbyggingu leikvangsins af stórhug og metnaði. Landsmót UMFÍ er fjölmennasta íþróttamót á Íslandi en fyrsta mótið var haldið árið 1909. Á þessu móti er keppt í mörgum greinum íþrótta auk ýmissa starfsíþrótta eins og dráttarvélarakstri, starfshlaupi, línubeitingu auk annarra greina. Það sem gerir mót þetta að stórviðburði á Íslandi er hinn mikli fjöldi keppenda og áhorfenda auk mikillar fjölbreytni í keppnisgreinum. Landsmót UMFÍ hafa sett sterkan svip á íslenska íþróttasögu og þeim hefur jafnan fylgt mikil uppbygging á þeim stöðum sem mótin eru haldin. Eins og áður sagði fer næsta landsmót fram í Kópavogi árið 2007 en 26. Landsmótið fer síðan fram á Akureyri 2009 en 100 árum fyrr fór þar fyrsta landsmótið fram. Lokastaðan á 24. Landsmóti UMFÍ 2004: 1. Ungmennasamband Kjalarnesþings 1.981,25 2. Ungmennasamband Skagafjarðar 1.776,25 3. Héraðssambandið Skarphéðinn 1.650,00 4. Íþróttabandalag Reykjavíkur 1.452,50 5. Héraðssamband Suður-Þingeyinga 667,50 6. Keflavík - íþrótta- og ungmennafélag 525,00 7. Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands 500,25 8. UMS Eyjafjarðar / UMF Akureyrar 429,75 9. Íþróttabandalag Hafnarfjarðar 321,00 10. Ungmennasamband Borgarfjarðar 304,50 11. Ungmennafélag Njarðvíkur 280,00 12. Héraðssamband Vestfirðinga 276,50 13. Íþróttabandalag Akureyrar 248,00 14. Héraðssamband Snæfellsness og Hnappadalssýslu 195,00 15. Ungmennafélagið Fjölnir 184,00 16. Ungmenna- og íþróttasamband Ólafsfjarðar 119,00 17. Ungmennasamband A-Húnvetninga 90,00 18. Héraðssamband Bolungarvíkur 90,00 19. Ungmennasamband Dalamanna og N-Breiðfirðinga 56,00 20. Ungmennasamband V-Húnvetninga 28,00 21. Ungmennasamband Vestur-Skaftafellssýslu 13,50 22. Ungmennasamband Norður-Þingeyinga 10,00 23. Ungmennafélagið Vesturhlíð 10,00 24. Ungmennasambandið Úlfljótur 10,00 25. Héraðssambandið Hrafnaflóki 4,00
Íþróttir Mest lesið Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Fótbolti Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Íslenski boltinn Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun Sport Af hverju mega sumir tala bak við lófa á HM en aðrir ekki? Fótbolti Ganverskur drengur fer á kostum með enskum landsliðsmönnum Fótbolti Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Körfubolti Fótboltamaður drukknaði í hitabylgjunni í Frakklandi Fótbolti „Ég held að við séum á heimleið“ Fótbolti „Ég er kominn á þann stað að ég þarf hjálp“ Sport Fleiri fréttir Stálu Norðmenn víkingaklappinu af Tólfunni? LaMelo Ball til Úlfanna Tómas Bent kominn með nýjan stjóra Oliver til FH „Alltaf skemmtilegt að taka á móti Víkingum heima“ Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Portúgalar gætu farið tvær mjög ólíkar og miserfiðar leiðir á HM Yngstur til að byrja leik á HM í 24 ár Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Fékk fimm leikja bann fyrir að valda fótbroti Kone Fótboltamaður drukknaði í hitabylgjunni í Frakklandi Krakkarnir fögnuðu eins og Ronaldo á Norðurálsmótinu Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Óþekkti markvörðurinn kominn með fleiri fylgjendur en Tom Brady Maður dagsins á HM: „Það var ekki ég sem uppgötvaði Vini Jr.“ Af hverju mega sumir tala bak við lófa á HM en aðrir ekki? Átján ára markahæst: Nýtir pirringinn sem orku og fer glaðbeitt á EM Gæti átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsi Martin fékk stóra rós í hnappagatið Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun „Ég er kominn á þann stað að ég þarf hjálp“ „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Ganverskur drengur fer á kostum með enskum landsliðsmönnum „Ég held að við séum á heimleið“ Sögulegt afrek Suður-Afríku en Mexíkó fagnaði sérstaklega einni skiptingu Stjörnur framtíðarinnar og risaleikur Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Segja Breka á leiðinni til Benfica Sjá meira