Davids búinn að semja við Inter 11. júlí 2004 00:01
Hollenski landsliðsmaðurinn og vinnuþjarkurinn, Edgar Davis, gerði um helgina þriggja ára samning við ítalska liðið Inter Milan. Davids, sem var í röðum Juventus, var lánaður til spænska liðsins Barcelona á síðasta tímabili og hafði verið orðaður við mörg ensk lið að undanförnu. Þessi 31 árs Hollendingur, sem hefur einnig spilað fyrir Ajax og AC Milan, ætlar að reyna sig áfram á Ítalíu en þar mun hann spila undir stjórn Roberto Mancini sem hefur tekið við þjálfun liðsins. Davids var með lausan samning og talið er að hann fái um 3,5 milljónir evra fyrir hvert tímabil eða um 310 milljónir íslenskra króna. Forseti Inter, fyrrum fyrirliði ítalska landsliðsins, Giacinto Facchetti, var ánægður með að hafa samið við Davids sem er rómaður fyrir vinnusemi sína og fórnfýsi fyrir liðið. "Við erum mjög ánægðir með að hafa klárað þennan mikilvæga samning við frábæran leikmann. Það voru mörg lið á eftir Davids og ekki bara lið hér á Ítalíu. Hann var með lausan samning og gat því ráðið því sjálfur hvert hann myndi fara. Það var ljóst frá fyrstu mínútu í okkar viðræðum að markmið okkar og hans fóru saman og því er hann á leiðinni til Inter," sagði Fachetti kampakátur og lái það honum enginn enda er Inter Milan að tryggja sér leikmenn sem flest stóru liðin í heiminum öfunda það af. Inter endaði í fjórða sæti ítölsku deildarinnar og það eru 15 ár liðin síðan liðið vann ítalska titilinn síðast. Það var árið 1989 þegar Þjóðverjarnir Laothar Matthaus og Andreas Bremhe voru í aðalhlutverkum hjá liðinu. Síðan þá hefur liðið sjö sinnum verið meðal þriggja efstu en aldrei unnið titilinn.
Íslenski boltinn Mest lesið Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Fótbolti Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Íslenski boltinn Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun Sport Af hverju mega sumir tala bak við lófa á HM en aðrir ekki? Fótbolti Ganverskur drengur fer á kostum með enskum landsliðsmönnum Fótbolti Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Körfubolti Fótboltamaður drukknaði í hitabylgjunni í Frakklandi Fótbolti „Ég held að við séum á heimleið“ Fótbolti Portúgalar gætu farið tvær mjög ólíkar og miserfiðar leiðir á HM Fótbolti Fleiri fréttir Guðrún eftirlét Thelmu og Fanneyju toppsætið fyrir sumarfríið Onana aftur að láni frá Man. Utd Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Tómas Bent kominn með nýjan stjóra Oliver til FH „Alltaf skemmtilegt að taka á móti Víkingum heima“ Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Portúgalar gætu farið tvær mjög ólíkar og miserfiðar leiðir á HM Yngstur til að byrja leik á HM í 24 ár Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Fékk fimm leikja bann fyrir að valda fótbroti Kone Fótboltamaður drukknaði í hitabylgjunni í Frakklandi Krakkarnir fögnuðu eins og Ronaldo á Norðurálsmótinu Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Óþekkti markvörðurinn kominn með fleiri fylgjendur en Tom Brady Maður dagsins á HM: „Það var ekki ég sem uppgötvaði Vini Jr.“ Af hverju mega sumir tala bak við lófa á HM en aðrir ekki? Átján ára markahæst: Nýtir pirringinn sem orku og fer glaðbeitt á EM Gæti átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsi Martin fékk stóra rós í hnappagatið Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun „Ég er kominn á þann stað að ég þarf hjálp“ „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Ganverskur drengur fer á kostum með enskum landsliðsmönnum „Ég held að við séum á heimleið“ Sögulegt afrek Suður-Afríku en Mexíkó fagnaði sérstaklega einni skiptingu Stjörnur framtíðarinnar og risaleikur Sjá meira