Þrír Víkingssigrar í röð 8. júlí 2004 00:01
Víkingar unnu sinn þriðja sigur í röð í Landsbankadeild karla og komust upp úr fallsæti í fyrsta sinn í sumar eftir 1–0 sigur á Grindavík í Víkinni í gær. Varnarmaðurinn Grétar Sigurðsson skoraði sitt þriðja mark í fjórum leikjum með skalla af stuttu færi eftir aukaspyrnu Vilhjálms Vilhjálmssonar. Öll mörk Grétars hafa komið með skalla eftir föst leikatriði. Víkingar spiluðu manni færri síðustu 30 mínútur leiksins eftir að Sölvi Geir Ottesen fékk sitt annað gula spjald fyrir að stöðva boltann með hendinni. Útsendarar Djurgarden fengu því ekki að sjá eins mikið af Sölva og þeir höfðu ætlað fyrirfram. Víkingar létu brottrekstur Sölva hinsvegar ekkert á sig fá og Grindvíkingar fengu engan tíma til athafna sig frekar en þegar Víkingar voru með fullskipað lið. Vilhjálmur Vilhjálmsson átti meðal annars tvö sláarskot í seinni hálfleik, annað þeirra úr aukaspyrnu frá miðju vallarins. Grétar Sigurðsson átti mjög góðan leik og var kjölfestan í varnarleik Víkinga í seinni hálfleik. Víkingar unnu ekki leik í fyrstu sex umferðunum og staðan var ekki árennileg en með þremur sigrum í röð eru þeir búnir að koma sér upp úr botnsætinu og sanna að þeir eiga heima meðal tíu bestu liða landsins. Rautt spjald Sölva þýðir þó að þeir verða án Sigurðar Jónssonar þjálfara, Sölva og Kára Árnasonar sem verða allir í leikbanni í næsta leik gegn Fram. Grindvíkingar eru ekki að spila sannfærandi um þessar mundir og eiga enn eftir að vinna á útivelli. Tilkoma Momir Mileta sem spilaði sinn fyrsta virðist engu breyta þar um, hann byrjaði ágætlega en missti fljótt taktinn. Víkingur – Grindavík 1-0 1–0 Grétar Sigfinnur Sigurðsson 37. Dómarinn Gísli Hlynur Jóhannsson Sæmilegur Bestur á vellinum Grétar Sigurðsson Víkingi Tölfræðin Skot (á mark) 10–10 (6–3) Horn 3–2 Aukaspyrnur fengnar 16–27 Rangstöður 6–5 Mjög góður Grétar Sigfinnur Sigurðsson Víkingi Góðir Steinþór Gíslason Víkingi Haukur Armin Úlfarsson Víkingi Vilhjálmur Vilhjálmsson Víkingi Paul McShane Grindavík
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ricky Hatton látinn Sport Víti í blálokin dugði Liverpool Enski boltinn Í beinni: FH - Fram | Allt undir í Krikanum Íslenski boltinn Sturluð lokaumferð fyrir skiptingu: Hvaða lið enda fyrir ofan strik? Íslenski boltinn Í beinni: Man. City - Man. Utd. | Sesko fær að byrja á Etihad Enski boltinn Í beinni: KA - Vestri | Efri hlutinn heillar Íslenski boltinn Áfall fyrir Norðmenn: „Þetta var mun verra en ég hélt“ Sport Sjáðu mörkin úr stórsigrum Arsenal og Spurs og dramatíkina í Lundúnum Enski boltinn Hvoru megin í Manchester er meiri krísa? Enski boltinn Vandræðalegt víti frá Messi Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjör: FHL - Breiðablik 1-5 | Breiðablik náði 11 stiga forystu á toppnum og felldi FHL um leið Í beinni: KR - Víkingur | Víkingar geta skotist á toppinn Víti í blálokin dugði Liverpool Í beinni: Man. City - Man. Utd. | Sesko fær að byrja á Etihad Mikael hraunaði yfir dómarann í hálfleik og lagði svo upp Glódís ekki enn spilað á tímabilinu Fljótasta fólk heims er frá Jamaíku og Bandaríkjunum Í beinni: Valur - Tindastóll | Stólarnir þurfa stig Í beinni: KA - Vestri | Efri hlutinn heillar Í beinni: FH - Fram | Allt undir í Krikanum Hlín fagnaði sætum sigri gegn Liverpool Ricky Hatton látinn Hvoru megin í Manchester er meiri krísa? Áfall fyrir Norðmenn: „Þetta var mun verra en ég hélt“ Vandræðalegt víti frá Messi Sturluð lokaumferð fyrir skiptingu: Hvaða lið enda fyrir ofan strik? Guðrún Karítas fjarri nýja metinu á sínu fyrsta HM „Draumur síðan ég var krakki“ Sjáðu mörkin úr stórsigrum Arsenal og Spurs og dramatíkina í Lundúnum Dagskráin í dag: Manchester-slagur á sófasunnudegi Stefnir á heimsmet og segist aldrei hafa verið í betra formi Ragnhildur endaði önnur eftir bráðabana „Ég eiginlega bara trúi þessu ekki“ De Bruyne og Højlund skoruðu gegn Albertslausu Fiorentina Fjórir markaskorarar er Bayern valtaði yfir Hamburger Meistararnir keyrðu yfir nýliðana í seinni hálfleik Mark Sveindísar duggði skammt Carvalho rændi stigi af Chelsea Endurkomusigur í ótrúlegum sjö marka leik Sævar hetjan í endurkomusigri Brann Sjá meira