Elsti prentstafur á Íslandi 1. ágúst 2004 00:01
Er b-ið úr Guðbrandsbiblíu fundið á Hólum í Hjaltadal? Fornleifafræðingar hafa grafið niður á elstu lög prenthúsanna þar sem fyrsta biblían á íslensku var prentuð í tíð Guðbrands biskups Þorlákssonar árið 1584. Béið er einstakt, gert úr korki, en prentstafir, sem hafa áður fundist þar sem prenthúsin á Hólum stóðu á miðöldum, eru úr blýi. Ragnheiður Traustadóttir, verkefnisstjóri Hólarannsóknar, segir það eitt af markmiðum Hólarannsóknar að grafa upp prenthúsin sem stóðu þar og þau séu nú komin niður á prenthús Guðbrands og sennilega séu þau því komin niður í gólfið þar sem Guðbrandsbiblían var prentuð Jón Arason biskup flutti til landsins fyrstu prentsmiðjuna og um langt skeið var rekin öflug prentsmiðja að Hólum. Einkum sinnti hún prentun guðsorðabóka. Þekktastur lúthersku biskupana á Hólum var eflaust Guðbrandur Þorláksson, en við hann er kennd Guðbrandsbiblía, sú fyrsta sem gefin var út á íslensku. Ragnheiður segir að fundist hafi mikið af prentletri. Sá prentstafur sem fundist hafi núna sé sennilega sá elsti enda úr korki. Prentstafir úr blýi hafi ekki komið fyrr en síðar og því sennilegt að stafurinn sé úr brentsmiðju Guðbrands. Það er skemmtileg tilviljun að sá stafur, sem finnst í lögum frá því um eða fyrir 1600, skuli einmitt vera B eins og í biblía. Prenthúsin hafa verið vel úr garði gerð. Ragnheiður segir að kakelónn hafi verið í húsinu og meginpartur hans sé þegar fundinn og líklegt að hægt sé að endurgera hann. Þá hafi verið gólfflísar í prenthúsinu og gluggar, en gamalt gler hefur fundist í húsinu. Það eru þó fyrst og fremst prentsáturnar sem segja forleifafræðingunum að þeir séu í réttu húsi. Þrjú hundruð stafir hafi þegar fundist og nú sá elsti. Flísalögð gólf, kakelónn og gluggar með gleri voru fátíðir í húsum um aldamótin 1600, en á Hólum var ekkert til sparað. Enda segir Ragnheiður að til að prenta fyrstu biblíuna hafi þurft að vera þurrt og góð birta. Hólarannsóknin er þverfagleg fornleifarannsókn íslenskra og erlendra sérfræðinga og teygir anga sína víða um Skagafjörð, þótt megináherslan sé á biskupssetrið á Hólum til forna. Rannsóknin er rekin á vegum Byggðasafnsins í Skagafirði, Hólaskóla og Þjóðminjasafnsins og með tilstyrk Kristnihátíðarsjóðs. Leiðsögn er um svæðið fyrir ferðamenn og sýning í Hólaskóla á gripum sem fundist hafa við uppgröftinn. Hólarannsóknin hófst fyrir þremur árum og er gert ráð fyrir að uppgrefti ljúki árið 2007.
Fréttir Innlent Mest lesið Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Innlent Á leið til Íslands átta vikum eftir slysið Innlent Féll allt að tuttugu metra við foss á Snæfellsnesi Innlent „Ég hef aldrei séð svona samninga“ Innlent Kettir drápust á meðan eigandinn var á ferðalagi Innlent Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Innlent Logar í yfirgefnum bústað við Elliðavatn Innlent Sömdu um reglulegar samfarir í ár eftir sambúðarslit Innlent Kominn undan feldi og svarið er nei Innlent Bæjarstjórinn einn á móti stækkun friðlýsingar Gróttu og Seltjarnar Innlent Fleiri fréttir Vildi fá hestinn endurgreiddan vegna aukatannar Viðræður við Klíníkina, barátta stórvelda og Breiðholt Got Talent Óðinn Svan leiðir L-listann Siguðu lögreglu á sofandi fastakúnna „Ég hef aldrei séð svona samninga“ Tveir veiðimenn fengu tvær milljónir frá Hval Boðar tímabundna heimild svo unnt sé að senda erlenda fanga fyrr úr landi Kominn undan feldi og svarið er nei Féll allt að tuttugu metra við foss á Snæfellsnesi Bíða enn gagna mánuði frá upphafi rannsóknar Gagnrýnin byggi „að miklu leyti á misskilningi“ Framlag Íslands mun minna en annarra Norðurlanda Á leið til Íslands átta vikum eftir slysið VG vex og býður á stefnumót og Vor til vinstri leitar að fólki Allt rykbindiefni búið Fjölmargir Íslendingar á ADHD-lyfjum sviptir bílprófi Bruninn látinn klára sig og vettvangur afhentur lögreglu Framlag Íslands hlutfallslega lítið og svifrykið hrellir borgarbúa Dorrit líkaði aldrei við „slepjulegan“ Epstein Tveggja bíla árekstur á Hellisheiði Fá sálfræðitíma en vilja bætur Yngra fólk líklegra til að strengja áramótaheit Kettir drápust á meðan eigandinn var á ferðalagi Ekki innritað í fjóra leikskóla í Reykjavík í haust Logar í yfirgefnum bústað við Elliðavatn Bæjarstjórinn einn á móti stækkun friðlýsingar Gróttu og Seltjarnar Líkamsárásir, þjófnaðir og fíkniefnabrot Virðist skipta máli hvaða stöðu fólk gegni Ósammála um að það sé kostur að vera formaður utan þings Tengslanet veikara og andleg líðan verri í dag en fyrir rýmingu Sjá meira