Verðum að vinna til eiga möguleika 14. júlí 2004 00:01
ÍA mætir TVMK Tallinn frá Eistlandi í forkeppni UEFA-bikarsins á Akranesvelli í kvöld. Þetta er fyrri leikur liðanna í keppninni en sá síðari fer fram í Eistlandi að viku liðinni. TVMK hefur verið á mikilli uppleið í Eistlandi síðustu ár og hefur fengið til sín margar gamlar kempur frá stórveldinu Flora Tallinn, sem Teitur Þórðarson þjálfaði á sínum tíma við góðan orðstír. Liðið er í þriðja sæti eistnesku deildarkeppninnar sem stendur og á í harðri baráttu við Flora og FC Levadia um meistaratitilinn. Liðið er eitt af hinum svokölluðu "rússnesku" liðum í deildinni og hefur á að skipa mörgum knattspyrnumönnum þaðan. Einnig eru í liðinu nokkrir eistneskir landsliðsmenn. TVMK er fullgilt atvinnumannalið og því ljóst að leikmenn ÍA mega búast við erfiðum slag í kvöld. "Það er alltaf gaman að taka þátt í Evrópukeppni og leikmenn hlakka mikið til leiksins. Við rennum svolítið blint í sjóinn með þetta lið og fengum ekki neinar myndbandsupptökur eða neitt slíkt. En ég mun ræða við Teit, sem þekkir vel til eistneskrar knattspyrnu frá því hann var þjálfari þar í landi. Hann mun gefa okkur mjög góðar upplýsingar um liðið," sagði Ólafur Þórðarson, þjálfari Skagamanna, í samtali við Fréttablaðið í gær. Hjálmur Dór Hjálmsson er í banni og Haraldur Ingólfsson er meiddur og því getur Ólafur ekki stillt upp sínu allra sterkasta liði í kvöld. Ólafur kveðst engu að síður bjartsýnn fyrir leikina og telur sitt lið eiga góða möguleika á að fara áfram nái það að spila sinn leik. "Það er alveg ljóst að við þurfum að vinna þennan heimaleik ef við ætlum okkur að eiga einhverja möguleika á að komast áfram, því þeir eru mjög erfiðir heim að sækja. Ég mun þurfa að breyta liðinu eitthvað vegna fjarveru þessara manna en við munum samt sem áður reyna að spila eins og við erum vanir," segir Ólafur. Teitur Þórðarson sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að TVMK væri feykilega vel mannað lið. "Rússnesku áhrifin er mjög greinileg innan þessa liðs og taktík þeirra gengur ekki svo mikið út á eiginlegt leikskipulag heldur frekar einstaklingana í liðinu. Það eru nokkrir mjög góðir knattspyrnumenn í liðinu sem mega ekki fá frið til að athafna sig og ef Skagamenn ná að koma í veg fyrir að TVMK nái upp sínu stutta og hraða spili þá tel ég þá eiga góða möguleika," sagði Teitur. Eins og áður segir fer leikurinn fram á Skipaskaga og hefst hann kl. 19:15.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Ég trúði ekki að þetta væri að gerast“ Sport Hefur eignast barn en þarf samt að sanna að hún sé kona Sport Mourinho grét á blaðamannafundi Fótbolti Fótboltamaður drukknaði Fótbolti Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Enski boltinn Dramatík í Barcelona: Félagið í mál við eigin leikmann Fótbolti Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Enski boltinn Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Enski boltinn Sjáðu Pedersen bæta metið og Skagamenn jafna með skrýtnum mörkum Íslenski boltinn Lars sendi kveðju til Íslands Fótbolti Fleiri fréttir Opinberuðu sambandið með sigurkossi Íslensku strákarnir byrjuðu HM á 22 marka sigri Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Lars sendi kveðju til Íslands Sjáðu Pedersen bæta metið og Skagamenn jafna með skrýtnum mörkum „Ég trúði ekki að þetta væri að gerast“ Evrópudeildarleikur Blika í beinni á Sýn Sport Mourinho grét á blaðamannafundi Hefur eignast barn en þarf samt að sanna að hún sé kona Fótboltamaður drukknaði Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez NFL-stjarna dæmd fyrir þátt í hundaati Dagskráin: Besta deildin ræður ríkjum Dramatík í Barcelona: Félagið í mál við eigin leikmann Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Patrick: Léttir að sjá boltann í netinu Lyon krækir í leikmann Liverpool Ómar Björn: Misreiknaði boltann Snéri til baka úr krabbameinsmeðferð og lokaði leiknum Eir og Ísold mæta á EM Markalaust í baráttunni um brúna Uppgjör: ÍA - Valur 2-2 | Skaginn náði í stig með ótrúlegu marki Brann á toppinn og Lyngby skreið áfram í bikarnum Hansen hamingjusamur í Víkinni næstu árin Tryggvi þurfti að bíða í 257 daga eftir að bæta metið Jorge Costa látinn Partey laus á skilorði Fór að gráta þegar hún skoraði Son verður sá dýrasti í sögunni Sjá meira