Ég er í draumaliðinu 30. desember 2004 00:01
Eiður Smári Guðjohnsen, nýkjörinn íþróttamaður ársins bæði hjá samtökum íþróttafréttamanna og hjá Fréttablaðinu og Vísi, er nú hálfnaður með sitt fimmta ár hjá Chelsea. Fréttablaðið ræddi við Eið Smára um lífið hjá Chelsea, peningana í boltanum og vonir og væntingar. Eins og alþjóð veit hafa miklar hræringar orðið á leikmannahóp Chelsea á undanförnum árum og er Eiður einn af örfáum leikmönnum sem hefur staðið allar breytingar af sér. Nú, undir stjórn nýs þjálfara sem hefur lýst Eið sem "sérstökum" leikmanni, hefur stjarna Eiðs aldrei skinið skærar. Hann kveðst eiga Jose Mourinho mikið að þakka og man vel eftir þeirra fyrstu kynnum. "Ég talaði við hann fyrst í síma þegar ég var að fara í sumarfrí. Það samtal var mjög stutt og laggott og eiginlega bara það sem ég þurfti að heyra. Þá sagði hann mér að hann vildi pottþétt hafa mig hjá Chelsea, það kæmi ekki til greina að ég færi neitt annað og hann liti á mig sem mjög mikilvægan hlekk í liðinu. Hann sagði við mig að þarna væri ég kominn með þjálfara sem hefði mikla trú á mér og vænti mikils af mér. Ég þakkaði fyrir mig og svaraði í sömu mynt," segir Eiður, sem farið hefur mikinn í vetur og fest sig í sessi sem sóknarmaður númer eitt hjá Chelsea. Hann kveðst sáttur með eigin frammistöðu í vetur. "Ég er í fínu formi og það er greinilegt að það hefur skilað sér að þjálfarinn ber mikið traust til mín. Hann lætur mig vita að hann sé mjög ánægður með hvernig ég er að spila og hvernig ég vinn fyrir liðið. Ef ég á að vera krítískur á sjálfan mig þá ætti ég að vera búinn að skora fleiri mörk" Og ertu krítískur á sjálfan þig öllu jöfnu? "Já. Ef ég skora ekki, og sérstaklega ef ég skora ekki og við töpum stigum vegna þess, þá er það eitthvað sem getur eyðilagt það sem hefði getað orðið góð kvöldstund." Eiður lýsir Mourinho sem afskaplega léttum og skemmtilegum náunga og segir hann að sú ímynd sem birtist af honum, bæði í fjölmiðlum og á hliðarlínunni í leikjum, sé ekki alltaf sú rétta. "En hann er mjög strangur og mikill sigurvegari. Hann vill alltaf fá það besta úr sínum mönnum og hann vill sjá okkur vinna hvert einasta einvígi inni á vellinum hverja einustu sekúndu. Hann hefur náð að búa til frábæra stemningu innan liðsins og menn eru miklu samstilltari en áður," segir hann. Gríðarlegt skipulag Tilkoma Mourinhos í ensku knattspyrnuna í sumar vakti mikla athygli. Hann hafði gert kraftaverk með lið Porto tímabilið áður þar sem hann sagði sjálfur að lykillinn að velgengninni hefði verið agi, agi og aftur agi. Mourinho fór aldrei leynt með það hann ætlaði sér að nota sömu vinnubrögð hjá Chelsea og einn af orðrómunum í haust var að hann hefði fært hverjum og einum leikmanni skýrslu sem tilgreindi væntingar til hvers og eins - slíkur væri metnaður Portúgalans. Eiður segir eitthvað til í þessum orðrómi þó hann vilji ekki fara út í smátriði skýrslunnar. "Við fengum mjög skýr skrifuð fyrirmæli um það hvernig undirbúningstímabilinu yrði háttað og hinum og þessum reglum sem okkur ber að fara eftir. Og þannig er það bara hjá Mourinho; "it´s my way or the highway"."Þessar reglur eru vissulega strangar en alls ekki glóruslausar," segir Eiður en vill ekki fara mikið nánar út í hvernig málum sé háttað hjá Mourinho. Hann sé einfaldlega bundinn trúnaði um hvað fari fram innan félagsins og á æfingasvæðinu En það er enginn skortur á sögusögnum um það sem sumir vilja bendla við "brjálæði" Mourinhos í skipulagi og taktík. Ein segir frá einum aðstoðarmanna Mourinhos, Andreas Villas að nafni, sem sér um að kortleggja andstæðinga Chelsea hverju sinni. Hann síðan afhendi Mourinho væna skýrslu daginn fyrir leik þar sem líklegt byrjunarlið andstæðinganna er tilgreint, veikleikar og styrkleikar hvers einasta leikmanns og jafnvel mögulegar innáskiptingar. Til að styðja þetta má nefna að eftir sigurleikinn gegn Aston Villa á annan í jólum hrósaði Mourinho stjóra Villa, David O´leary, fyrir að hafa gert innáskiptingar sem hann hafi ekki séð fyrir. Aftur hikar Eiður við að svara vegna trúnaðar en hann neitar þó ekki fyrir að slíkar kortlagningar, sem segja má að jaðri við sjúkleika, eigi sér stað. "Ég má ekki segja of mikið en það sem ég get sagt er að Mourinho er með einvala lið aðstoðarmanna sem hverjir hafa sitt hlutverk. Eitt af þeim er að líta á andstæðingana," segir Eiður. Ein umdeildasta sala á leikmanni í gegnum tíðina í knattspyrnuheiminum var þegar Barcelona ákvað að selja Michael Laudrup, þá óumdeilanlega besta mann liðsins. Johan Cruyff, þáverandi þjálfari, greindi frá ástæðu sölunnar í ævisögu sinni og í ljós kom að Laudrup var seldur því að hann hafði dregið úr hlaupum sínum inn í vítateiginn um tugi prósenta - einföld tölfræði sýndi það. Og þar sem Laudrup gerði ekki það sem hann átti að gera hefði ekki verið annað í stöðunni en að selja hann. Blaðamanni lék forvitni á að vita hvort jafn djúp tölfræði væri í hávegum höfð hjá Chelsea, og hvort leikmenn yrðu varir við hana. "Það er sannarlega tölfræði í gangi. Ég get nefnt sem dæmi að það er fylgst nákvæmlega með hversu langa vegalengd menn hlaupa í hverjum og einum leik. Menn eru síðan gagnrýndir eða hrósað eftir því sem við á. En það er fylgst með hinum ólíklegustu hlutum inni á vellinum, hlutum sem áhorfendur taka ekki eftir," segir Eiður og bendir á að hann hafi sjálfur fengið mikið hrós fyrir mikla framför í vinnu inni á vellinum án bolta - annar vinkill sem er rannsakaður út í gegn af aðstoðarmönnum Mourinho. Sé um mig og mína Eiður segir að leikmenn verði mjög varir við Roman Abramovich, rússneska auðkýfinginn sem virðist vera reiðubúinn að dæla endalausu fjármagni í félagið. "Já, mikið. Hann kemur nánast alltaf inn í klefa eftir leiki bara svona til að blanda geði. Hann skiptir sér ekki mikið af, er meira baka til og fylgist með en heilsar alltaf upp á okkur leikmennina. Hann gerir sér alveg grein fyrir því að þjálfarinn sér um þetta allt saman og skiptir sér ekkert af. Hann hrósar okkur persónulega ef honum finnst svo skipta og tekur alltaf í höndina á okkur eftir leik, hvort sem við vinnum eða töpum. Það virðist aldrei sjá á honum þótt við náum ekki góðum úrslitum." Sagan segir að hann hafi uppgötvað fótbolta fyrir nokkrum árum, líkað vel og ákveðið að kaupa sér eins og eitt stykki lið? Veit hann eitthvað um fótbolta? "Það veit ég nú ekki en það virðist þá allavega vera að færast í aukana. Af þeim samtölum sem ég hef átt við hann þá virðist hann alveg vita um hvað hann er að tala." Eiður segist umgangast samherja sína hjá liðinu töluvert og þá mest miðjumanninn Frank Lampard. Hann gengur jafnvel svo langt að kalla hann vin sinn. "Svona allt að því. Þetta eru allt þannig séð vinnufélagar sem maður tengist á mismunandi hátt eins og gengur og gerist í daglegu lífi," segir Eiður. Hann nefnir einnig fyrirliðann John Terry sem náunga sem honum líki mjög vel við. "Ég og Jimmy (Floyd Hasselbank) vorum líka góðir félagar og höldum sambandi í dag þótt hann sé farinn annað. Ég heyri líka í Zola annað slagið," segir Eiður. "En maður kallar ekki allt vini sína. Vinir eru þeir sem eru mjög nánir mér og ég ber ótrúlega mikla virðingu fyrir. Og þannig séð þeir eru ekki margir." Sem fyrirliði landsliðsins hafðir þú atkvæðarétt í kjöri FIFA á besta knattspyrnumanni heims. Þú valdir Frank Lampard í fyrsta sætið en Thierry Henry númer tvö og sigurvegarann sjálfan, Ronaldhinho, númer þrjú. Er Lampard virkilega þetta góður eða var þetta kannski bara vinagreiði? "Bæði og. Ég sé ótrúlega mikið í honum og hann er mikill drifkraftur fyrir okkar lið. En hann er mikill félagi minn og ég verð að segja eins og er að ef ég væri alveg hlutlaus þá er ég ekki viss um að ég hefði kosið hann í fyrsta sæti. En svona er þetta, maður þarf að sjá um sig og sína." Hvaða leikmaður Chelsea býr yfir mestu hæfileikunum? Það er nú þannig þegar maður er í svona liði að maður sér ótrúlega hæfileika í hverjum og einum og ýmsir hlutir sem standa upp úr hjá einstaklingum. Ef ég þyrfti að pikka út einn þá held ég að John Terry sé sá leikmaður sem hefur vaxið mest af þeim sem ég hef fengið að fylgjast með. Hann hefur þróast út í ótrúlega öflugan leikmann og það veitir mér alltaf mikið sjálfstraust þegar hann talar um hvernig það er að dekka mig á æfingum. Hann þolir það ekki." Hver er mesti húmoristinn í Chelsea? "Mér er sagt að það sé ég sem er yfirleitt mesti vitleysingurinn," segir Eiður og hlær. "Nei, en ef við tölum í alvöru þá held ég að ég sé nokkuð stilltur öllu jöfnu. John Terry er alltaf léttur og á það til að reyta af sér brandarana á æfingum," segir Eiður. Hann hlær dátt aðspurður um sérvitrasta leikmanninn. "John Terry er til dæmis ótrúlega sérvitur á mat. Það er alveg sama hvert við förum – maturinn er alltaf vondur. Nema það sé hefðbundinn breskur pöbbamatur. Þá er hann fyrst sáttur." Er í draumaliðinuÞú hefur alltaf haldið tryggð við Chelsea þrátt fyrir að vera bendlaður við fjölmörg lið. Hvað er það sem heldur þér þarna? "Það er liðið, það sem býr í liðinu og það sem liðið á eftir ógert. Fyrst og fremst er það þó það sem ég á eftir að sýna af sjálfum mér hjá Chelsea. Ég trúi því virkilega að ég eigi mikið inni og ef ég mætti kjósa þá myndi ég ekki vilja fara frá Chelsea fyrr en ég væri búinn að ná því besta út úr sjálfum mér. Og það er vonandi að það fylgi því einhverjar viðurkenningar, hvort sem það er sigur í deildinni eða eitthvað annað." Gæturðu hugsað þér að klára ferilinn hjá Chelsea? "Eins og staðan er í dag þá gæti ég það auðveldlega, já. Þegar ég hugsa um það þá kitlar það að prófa Ítalíu eða Spán eftir einhver ár en eins og staðan er núna þá er ég í draumaliðinu mínu." Er Chelsea með fullmótaðan leikmannahóp í dag? "Það er erfitt að segja. Það er alltaf hægt að bæta eitthvað við en eins og staðan er núna þá held ég að við ættum ekki að kaupa neinn í janúar. Í dag erum við með hóp sem þarfnast ekki mikils. Ég býð velkomna alla leikmenn sem koma til Chelsea en ég mun alltaf vera jafn harður á því að sýna mitt besta og vinna sæti í liðinu," segir Eiður, sem á sínum ferli hefur þurft að kljást við fjölda stórkostlegra framherja um sæti í liðinu sem margir hverjir hafa aldrei náð sér á strik og hrökklast burt. En alltaf heldur Eiður sínu striki. "Það er erfitt að segja hvað ég geri öðruvísi en þeir. Kannski er ég bara öðruvísi persónuleiki sem er ekki tilbúinn að gefast upp þótt kannski blási aðeins á móti. Kannski er þetta bara íslenska eðlið. Ég veit að ég hef meiri hæfileika en svo að sætta mig við sæti á bekknum hjá Chelsea," segir Eiður og virðist vel meðvitaður um eigið ágæti. Enginn efast um að Eiður er einn af örfáum íslenskum knattspyrnumönnum í gegnum tíðina sem hafa búið yfir þessum meðfæddu knattspyrnuhæfileikum sem brúa bilið á milli góðra leikmanna og þeirra allra bestu. Og það er engum dulið að það er vegna slíkra hæfileika sem leikmenn á borð við Eið, Damien Duff, Arjen Robben og margir fleiri eru fengnir til Chelsa. Það er því við hæfi að spyrja hvernig slíkum framúrskarandi knattspyrnumönnum er sagt til í leikjum - hversu mikið leggur Mourinho upp úr taktík? "Þetta er að vissu leyti rétt og menn eins og Duff og Robben eru tiltölulega frjálsir. En þeir hafa ákveðnum skyldum að gegna, sérstaklega varnarlega. Það eru ýmsar hreyfingar og ýmis hlaup sem við setjum upp og við leikmennirnir reynum að leita eftir. Hreyfing án bolta er gríðarlega mikilvæg og eitthvað sem Mourinho leggur mikla áherslu á." Þú hefur verið að spila sem fremsti maður í 4-3-3 leikkerfi mestmegnis tímabilsins. Hvernig líkar þér það? "Mér líkar það ágætlega. En ég held að það sé samt mjög vanmetið það hlutverk sem þessi eini framlínumaður hefur hverju sinni, hvort sem það er ég eða Didier Drogba. Oft er maður rosalega einsamall. En mér líður bara best inni á vellinum og er alveg sama hvar þjálfarinn spilar mig. Ef hann myndi setja mig í markið þá yrði ég alveg sáttur." Peningar eru aukaatriði Eiður skrifaði undir nýjan samning við Chelsea í sumar þar sem kjör hans tóku hátt stökk og hafa ýmsar tölur verið nefndar í því samhengi. Í dag er Eiður á meðal launahæstu leikmanna félagsins og undirstrikar það enn frekar stöðuna sem hann hefur innan herbúða þess og í hversu miklum metum hann er. Eiður segir að þótt peningar skipti vissulega máli þá séu þeir síður en svo aðalatriðið. "Maður er í vinnu og maður semur um laun sín eins og hver vinnandi maður. Þetta eru vissulega á köflum brjálaðar fúlgur og ég geri mér fyllilega grein fyrir því að fótboltamenn eru að þéna meira en nokkur meðalmaður gerir á eðlilegri starfsævi. En svona er bara fótboltinn í dag og ég hugsa að allir, í hvaða vinnu sem þeir eru, mundu gera allt til að ná því mesta út úr þeim fjármunum sem í boði eru. Ég er ekki montinn af því hvað ég er með í laun. Ég vil ekki að fólk líti upp til mín af því hversu mikið ég fæ borgað. Ég vil að fólk líti upp til mín vegna þess hversu góður knattspyrnumaður ég er." Hver er þín afstaða til aðstæðna eins og Roy Keane hefur hjá Manchester United, þar sem hann er með klásúlu í samningum sem segir að hann verði alltaf með jafn há laun og sá launahæsti hjá félaginu. Það að fara fram á svona klásúlu og fá hana í gegn, er ekki verið að kæfa allan knattspyrnulegan metnað í hreinni gróðafíkn og græðgi? "Ég held að hver og einn einasti leikmaður sem ég þekki myndi kjósa titla fram yfir peninga. Maður vill vinna og sýna fólki að maður sé sigurvegari og ég held að engir peningar komi nálægt því. Allavega ekki í mínum augum." Sven-Göran Eriksson hefur sagt að þú værir líklega fastamaður í enska landsliðinu ef þú værir enskur og lét hafa það eftir sér að þú hefðir mjög líklega verið valinn í enska hópinn á EM í sumar. Þegar þú heyrir svona ummæli, verðurðu þá svekktur að koma frá litla Íslandi sem kannski hefur takmarkaða möguleika á að komast á stórmót í knattspyrnu, eða líturðu á þetta sem hrós? "Ég get ekki annað en litið á þetta sem hrós. Ég er stoltur Íslendingur. Ég elska að spila fyrir mína þjóð. Mér finnst frábær heiður að vera fyrirliði og ef ég myndi einhverntímann fá að fara á HM eða EM þá myndi ég aldrei vilja fara með neinum öðrum en íslenska landsliðinu. Svo einfalt er það. Það er endalaust hægt að segja "ef" þetta og "ef" hitt en það þýðir ekkert að spá í það. Ég er afar stoltur af því að setja upp fyrirliðabandið og klæða mig í íslensku landsliðstreyjuna og ég vona líka að fólk sé stolt af mér. Fyrir fótboltaferilinn þá er það að spila með íslenska landsliðinu hverri stund betri," segir íþróttamaður ársins að lokum, sem er þó með hugann við jólatörnina í ensku úrvalsdeildinni um þessar mundir og reynir að hugsa sem minnst um landsliðsmál á meðan. Jose Mourinho ætlar sér sigur og hann harðbannaði Eiði að koma til landsins til að taka á móti verðlaununum. Og hugarfar Mourinhos virðist hafa smitað út frá sér því Eiður er ekki í vafa um hverjir muni standa uppi sem enskir meistarar í vor. "Það verður Chelsea." vignir@frettabladid.isRagnhildur Sveinsdóttir, sambýliskona Eiðs Smára, tók við bikarnum úr hendi Adolfs Inga Erlingssonar, formanns Samtaka íþróttafréttamanna en annir í enska boltanum leyfðu ekki að Eiður kæmi heim til að taka við verðlaununum sjálfur.
Enski boltinn Íslenski boltinn Mest lesið Endaði á sjúkrahúsi eftir árás frá kú Sport Elsti maraþonhlaupari sögunnar varð fyrir bíl og lést Sport Trump fékk alvöru bikarinn en Chelsea aðeins eftirlíkingu Fótbolti Kaupa ekki Ekitike vegna þess að þeir ætli að selja Isak til Liverpool Enski boltinn Totti í harðri forræðisdeilu um fjögur Rolex úr Fótbolti Einn af hinum smávöxnu í afmæli Yamal kemur stráknum til varnar Fótbolti „Það var engin taktík“ Fótbolti Seldu fyrir 44 milljónir evrur meira en þeir borguðu Man. Utd ári áður Sport Íslandsvinirnir í Puma borga Manchester City 165 milljarða Enski boltinn Segist hafa farið 47 sinnum holu í höggi á ferlinum Golf Fleiri fréttir Liverpool tilbúið að slá metið aftur Ásthildur skoraði átján mörk í stórsigri íslensku stelpnanna Púttaðstaða eins og hjá Tiger og Rory Seldu fyrir 44 milljónir evrur meira en þeir borguðu Man. Utd ári áður „Ekki jafn miklar þreifingar og ekki jafn lokaður leikur“ KR-ingar hafa enn ekki unnið útileik í sumar „Margt dýrmætt á þessum ferli“ Valskonur þurfa að vinna hollensku meistarana til að fá Íslendingaslag Íslandsvinirnir í Puma borga Manchester City 165 milljarða Segist hafa farið 47 sinnum holu í höggi á ferlinum Kaupa ekki Ekitike vegna þess að þeir ætli að selja Isak til Liverpool Segir að HM félagsliða verði stærri en Meistaradeildin Sjáðu mörkin úr Bestu: Hetjudáðir fyrirliðans og alvöru innkoma Einn af hinum smávöxnu í afmæli Yamal kemur stráknum til varnar Endaði á sjúkrahúsi eftir árás frá kú Trump fékk alvöru bikarinn en Chelsea aðeins eftirlíkingu Wembanyama fær grænt ljós frá læknateymi Spurs Elsti maraþonhlaupari sögunnar varð fyrir bíl og lést Dagskráin í dag: Blikar berjast fyrir lífi sínu í Meistaradeildinni Totti í harðri forræðisdeilu um fjögur Rolex úr Toone með sögulega fullkomna tölfræði „Það var engin taktík“ „Labbar ekki inn í líkamsrækt og byrjar að sprauta í þig sterum“ Raggi Nat á Nesið Sautján ára troðsludrottning vekur athygli Jóhannes kominn aftur heim en ekki með KR í kvöld Uppgjörið: ÍA - KR 1-0 | Skagamenn náðu fram hefndum Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan | Nauðsynlegur sigur fyrir Eyjamenn Ísland sendir bara konur til leiks á EM U23 í frjálsum Sjáðu öll tíu mörk Messi í nýjasta metinu hans Sjá meira