Lífið

Berlusconi í hárígræðslu?

Ítalskir fjölmiðlar velta því nú mikið fyrir sér hvort Silvio Berlusconi, forsætisráðherra landsins, hafi farið í hárígræðslu. Sem kunnugt er skartaði hann forláta skýluklút þegar Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, var hjá honum í heimsókn á dögunum. Nú hefur það kvisast út að hann gangi með skýluklútinn líka á kvöldin og segja ítalskir fjölmiðlar að ekki einu sinni sjóræningjar, sem gjarnan báru slík höfuðföt, hafi gert slíkt. Grunur leikur því á að Berlusconi hafi farið í hárígræðslu enda segjast vitni hafa séð hann fara inn á slíka stofu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.