Draumur verður að veruleika 13. september 2004 00:01
Fyrsta plata dúettsins Braks kom út á dögunum og kallast hún Silfurkoss. Lögin, sem eru tólf talsins, eru eftir þá félaga Harald Gunnlaugsson og Hafþór Ragnarsson. Allir textar eru á íslensku. Að sögn Haraldar hafa þeir verið lengi að þó að sveitin sjálf hafi aðeins verið til í nokkur ár. Hafþór var áður í hljómsveitinni Sonum Raspútins en Haraldur hefur meira einbeitt sér að sveitaballabransanum. "Þetta er draumur sem er að verða að veruleika hjá okkur," segir Haraldur. "Við höfum spilað tónlist í 10 til 15 ár og það var kominn tími á þetta." Haraldur bætir við að vinnsla plötunnar hafi verið strembin, enda tók hún tvö ár. "Maður vill vanda sig við fyrstu plötuna. Við gerðum allt sjálfir en fengum þó hljóðfæraleikara til að aðstoða okkur," segir hann. Á meðal þeirra eru bassaleikari Jagúar, Ingi S. Skúlason, og sveiflukóngurinn sjálfur Geirmundur Valtýsson sem grípur í nikkuna í einu lagi. "Það var algjör snilld að vinna með Geirmundi. Hann er frábær í samstarfi og frábær harmonikkuleikari." Tónlist Braks hefur verið lýst sem vönduðu popprokki með breskum áhrifum. Nú þegar hefur titillag plötunnar, Silfurkoss, ómað nokkuð títt á Rás tvö og svo er á næstunni væntanlegt myndband við lagið Álfar. Útgáfutónleikar eru fyrirhugaðir síðar í vetur en þeim sem vilja kynnast sveitinni nánar er bent á heimasíðuna, brak.tv.
Menning Mest lesið Kemst ekki inn í landið og Hafdís þarf að bíða Lífið Einlæg skellibjalla sem stefnir á stóra sviðið Lífið Aðstandendur Secret Solstice standa að nýrri hátíð sem hefst með almyrkvanum Lífið Frumflutti nýtt lag á FM957: „Þetta er bara winning lag“ Tónlist Gerðu sumarfríið að heitasta ástarævintýri ársins Lífið Matreiðslubókin hlaut eftirsótt alþjóðleg verðlaun Lífið Í hennar anda að vera ein slakasta brúður sögunnar Lífið Katrín Odds og Þorgerður eignuðust sólardreng Lífið Taktu þátt í sumarbókaviku á Bylgjunni og Vísi Lífið samstarf Eftirrétturinn sem Espresso Martini-aðdáendur elska Lífið Fleiri fréttir Kemst ekki inn í landið og Hafdís þarf að bíða Matreiðslubókin hlaut eftirsótt alþjóðleg verðlaun Aðstandendur Secret Solstice standa að nýrri hátíð sem hefst með almyrkvanum Einlæg skellibjalla sem stefnir á stóra sviðið Gerðu sumarfríið að heitasta ástarævintýri ársins Eftirrétturinn sem Espresso Martini-aðdáendur elska Katrín Odds og Þorgerður eignuðust sólardreng Ragga Gísla og Hipsumhaps á Innipúkanum sem færir sig um set Væb fara í tónleikaferð um Evrópu Unnur Birna og Pétur keyptu einbýlishús í Garðabæ „Þetta var eins og draumur sem ætlaði aldrei að taka enda“ „Þegar ég hitti þá fyrst pissaði ég á mig“ Í hennar anda að vera ein slakasta brúður sögunnar „Fullkomin viðbót“ hjá Selmu og Sölva Uppáhalds sumardrykkur Gerðar: „Ég fæ ekki nóg“ Felix kveður Eurovision með tárum Matti og Brynhildur selja slotið og stefna á sveitasæluna Bríet og Reykjavíkurdætur á Kvennavöku annað kvöld Styrktarforeldrið Hafdís er fundin Quarashi aftur á svið Mikil stemning á Íslandshátíð í Tívólí í Kaupmannahöfn Merktur LXS skvísunum fyrir lífstíð Kristín og Þorvar gáfu syninum nafn á þjóðhátíðardaginn Mos Def staðfestur og unnið að fleiri tónleikum í stað Lóu Rappa á lýðveldishátíð í tívolíinu: „Heyri eiginlega bara íslensku hérna“ Indverji á leið til landsins leitar að SOS foreldrinu Hafdísi Bieber í basli: „Ég veit að ég er skemmdur“ Magnús hjá Blue Car kaupir glæsiíbúð Bjögga Thors Dóttir Hilmis Snæs og Völu er Völudóttir Rikki G og fjölskylda sprengdu blöðruna Sjá meira