Stórmeistarajafntefli í Vesturbæ 10. júlí 2004 00:01
Fylkismenn gerðu fína ferð í Frostaskjólið í gær og náðu 1–1 jafntefli í leik sem var í heildina heldur bragðdaufur. Jafnteflið þýðir að gjáin á milli liðanna er enn sú sama – sex stig – og Fylkismenn sem fyrr á toppnum með 19 stig. Þegar aðeins átta leikir eru eftir af Landsbankadeildinni eru KR-ingar aðeins með 13 stig og eru hreinlega að falla á tíma ef þeir ætla sér að verja íslandsmeistaratitil sinn. Fylkismenn hljóta aftur á móti að teljast meistaraefni. Að ná jafntefli í fjarveru nokkura lykilmanna er fínt afrek og þeir hafa löngu sýnt að seiglan sem býr í liðinu er mikil þrátt fyrir erfiða leikjatörn á síðustu vikum. KR-ingar hófu leikinn af miklum krafti í gær og höfðu á þrjú fín færi áður en Arnar Jón Sigurgeirsson kom þeim verðskuldað yfir strax á 12. mínútu. Þá fylgdi hann eftir máttlitlu skoti Kjartans Henry Finnbogasonar sem Bjarni Þórður Halldórsson í markinu náði ekki að halda. Klaufalegt hjá markmanninum bráðefnilega, en hann átti eftir að kvitta fyrir mistökin síðar í leiknum með góðri markvörslu. Eftir markið var eins og leikmenn KR væru hreinlega orðnir saddir og Fylkismenn sóttu í sig veðrið. A markamínútunni 43. náði Sævar Þór Gíslason að jafna metin fyrir gestina með fallegu marki. Sævar var þá með boltann á vinstri kanti og átti það sem virtist vera fyrirgjöf en endaði á því að vera hið fínasta skot – boltinn sveif yfir Kristján Finnbogason í markinu og hafnaði í fjærhorninu. Síðari hálfleikur var tíðindalítill og undarlegt að sjá KR-inga jafn máttlausa þrátt fyrir að þurfa nauðsynlega á sigri að halda. Þeir náðu reyndar upp ágætri pressu síðasta stundarfjórðunginn en Fylkismenn héldu út og sitja áfram einir á toppnum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Fótbolti Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Íslenski boltinn Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun Sport Breiðablik - Víkingur | Geta unnið tólfta leikinn í röð Íslenski boltinn Af hverju mega sumir tala bak við lófa á HM en aðrir ekki? Fótbolti Portúgalar gætu farið tvær mjög ólíkar og miserfiðar leiðir á HM Fótbolti Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Körfubolti Ganverskur drengur fer á kostum með enskum landsliðsmönnum Fótbolti Fótboltamaður drukknaði í hitabylgjunni í Frakklandi Fótbolti Fleiri fréttir Anton Ingi ráðinn þjálfari dansks félags Curacao - Fílabeinsströndin | Kemur smáþjóðin aftur á óvart? Ekvador - Þýskaland | Veik von Ekvadora Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Breiðablik - Víkingur | Geta unnið tólfta leikinn í röð Guðrún eftirlét Thelmu og Fanneyju toppsætið fyrir sumarfríið Onana aftur að láni frá Man. Utd Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Tómas Bent kominn með nýjan stjóra Oliver til FH „Alltaf skemmtilegt að taka á móti Víkingum heima“ Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Portúgalar gætu farið tvær mjög ólíkar og miserfiðar leiðir á HM Yngstur til að byrja leik á HM í 24 ár Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Safnaði átta milljónum fyrir Kolfinnu: „Takk, íslenska þjóð“ Fékk fimm leikja bann fyrir að valda fótbroti Kone Fótboltamaður drukknaði í hitabylgjunni í Frakklandi Krakkarnir fögnuðu eins og Ronaldo á Norðurálsmótinu Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Óþekkti markvörðurinn kominn með fleiri fylgjendur en Tom Brady Maður dagsins á HM: „Það var ekki ég sem uppgötvaði Vini Jr.“ Af hverju mega sumir tala bak við lófa á HM en aðrir ekki? Átján ára markahæst: Nýtir pirringinn sem orku og fer glaðbeitt á EM Gæti átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsi Martin fékk stóra rós í hnappagatið Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun „Ég er kominn á þann stað að ég þarf hjálp“ Sjá meira