Höfum viljann til að vinna 11. október 2004 00:01 "
Ég á við smávægileg meiðsl að stríða í fæti og það er ástæðan fyrir því að ég spilaði ekki meira með gegn Haukum," sagði handboltastjarnan Stefan Lövgren, fyrirliði og leikmaður Kiel, en liðið vann Íslandsmeistara Hauka auðveldlega að Ásvöllum í fyrrakvöld með sjö marka mun 28 - 35. Lövgren sem er án alls vafa stærsta stjarna liðsins og einn af fremstu handknattleiksmönnum veraldar í dag kom lítið við sögu í leiknum og spilaði aðeins síðustu mínútur leiksins vegna meiðsla. Greinilegt var engu að síður að kappinn brann í skinninu allan tímann á bekknum og hélt hann sér heitum með teygjuæfingum með jöfnu millibili. "Strákarnir kláruðu þetta mikið til án mín enda er mikil breidd í hóp Kiel. Það er brýn þörf á slíkum mannskap þegar markmiðið er sett hátt og við hjá liðinu gerum það vissulega. Þeir eru margir sem spá því að við förum alla leið í Meistarakeppninni og innan liðsins teljum við okkur hafa getu og vilja til að fara alla leið. Þetta er titill sem alla handboltamenn dreymir um og við í Kiel erum engin undantekning." Lövgren segir ekkert hafa komið á óvart í leik Hauka enda hafi farið mikill tími í að kynna sér andstæðinginn áður en til leiksins kom. "Við tökum engu sem sjálfsögðu og það átti líka við um leikinn hér við Hauka. Sigur okkar var vissulega stór en við þurftum að hafa fyrir hlutunum. Auðvitað er einhver getumunur á liðinum tveimur enda um atvinnumannalið að ræða gegn áhugamannaliði en Haukar leika hraðan og skemmtilega handbolta og þeir héldu okkur sannarlega við efnið." Lövgren hefur oft komið til Íslands áður og finnst gaman hér að vera. Hann er mikill golfáhugamaður en hefur þrátt fyrir tilraunir ekki lækkað forgjöfina hjá sér sem neinu nemur um skeið. "Ég hefði getað hugsað mér að taka einn hring á golfvellinum ef tími hefði gefist til en það bíður betri tíma. Þó spilaði ég golf hér um sumar fyrir mörgum árum og mun áreiðanlega koma hingað aftur einn góðan veðurdag." albert@frettabladid.is
Íþróttir Mest lesið Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Íslenski boltinn Arsenal í undanúrslit eftir vító Enski boltinn Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Handbolti Erfitt að vera í burtu þegar mamma greindist Fótbolti Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Enski boltinn Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Hættur aðeins þrítugur Golf Sjáðu geggjaðan snúning Alberts áður en hann skoraði frábært mark Fótbolti Fleiri fréttir Ótrúlegur sigur á HM: „Ég er mjög tregur svo pressan nær ekki til mín“ Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Guðrún Brá og Gunnlaugur Árni slógu best í ár Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Kongóliðar byrja á sigri Glódís framlengir samninginn við Bayern Chelsea setur sig í samband við Semenyo Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Hætt við að spila í Ástralíu en óvíst hvar leikurinn verður Neymar kominn á lappir og lofar að skora í úrslitaleik HM Tryggðu þrjú lið í úrslitakeppnina Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Kansas frá Kansas til Kansas Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Hápunktur ársins að jafna pabba á heimavelli Missti alveg stjórn á skapinu en það skilaði sigri Erfitt að vera í burtu þegar mamma greindist „Svona lítur frábær ákvörðun út“ Sakaður um niðurlægingu: „Við viljum ekki hafa hann sem þjálfara“ Sjá meira