Sport

Sandor Matus varði 3 víti frá ÍBV

Það má með sanni segja að ungverski markvörðurinn Sandor Matus hafi verið þyngdar sinnar virði í gúllasi fyrir KA-menn í gærkvöld en hann tryggði þeim sæti í undanúrslitum VISA-bikarsins nánast upp á eigin spýtur eftir viðureign við Eyjamenn á Akureyrarvelli í kvöld.  Staðan var markalaus eftir venjulegan leiktíma og framlengingu og því þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni. Þá tók Matus til sinna ráða og varði allar þrjár vítaspyrnur Eyjamanna í vítakeppninni. Á sama tíma tíma skoruðu KA-menn úr öllum þremur spyrnum sínum og tryggðu sér þar með sæti í undanúrslitum bikarsins fjórða árið í röð. KA-menn voru mun sterkari aðilinn í leiknum allt þar til á 75. mínútu þegar Dean Martin fékk rauða spjaldið fyrir brot á Bjarnólfi Lárussyni. Allt annað var að sjá til liðsins heldur en í síðustu leikjum en leikurinn jafnaðist nokkuð eftir að Martin var farinn af velli. Gunnar Heiðar Þorvaldsson og KA-maðurinn Jóhann Þórhallsson fengu báðir tækifæri til að skora fyrir sín lið en bestu menn liðanna, markverðirnir Sandor Matus og Birkir Kristinsson, sáu við þeim eins og öðrum leikmönnum liðanna í gærkvöld. „Vítaspyrnukeppnir eru alltaf erfiðar. Þegar út í þær er komið þá er jafnt á komið með sóknarmönnum og markmönnum. Í dag hafði ég betur. Liðið er búið að spila illa í deildinni en vel í bikarnum og vonandi hjálpar þessi leikur okkur gegn Skagamönnum í deildinni á sunnudaginn,“ sagði Sandor Matus, hin ungverska hetja KA-manna, eftir leikinn. KA-ÍBV 0-0 (3-0 í vítakeppni)Vítakeppnin: Atli Sveinn Þórarinsson KA 1–0 Gunnar Heiðar Þorvaldssson ÍBV - varið Örlygur Þór Helgason KA 2–0 Matt Garner ÍBV - varið Jóhann Helgason KA 3–0 Ian Jeffs ÍBV - varið Dómarinn Magnús Þórisson Góður Bestur á vellinum Sandor Matus KA Tölfræðin Skot (á mark)  12–7 (5–3) Horn 11–2 Aukaspyrnur fengnar 17–14 Rangstöður 1–2 Frábærir Sandor Matus KA Mjög góðir Birkir Kristinsson ÍBV Góðir Atli Sveinn Þórarinsson KA Roinni Hartvig KA Hreinn Hringsson KA Örlygur Þór Helgason KA Tryggvi Bjarnason ÍBV Bjarnólfur Lártusson ÍBV Páll Hjarðar ÍBV Gunnar Heiðar Þorvaldsson ÍBV



Fleiri fréttir

Sjá meira


×