Málið ekki í höfn 5. ágúst 2004 00:01 "
Þarna er um að ræða lítið skref í rétta átt en engu að síður er langt í land ennþá," segir Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur. Háttsettir aðilar innan varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli hafa gefið munnlegt samþykki til að koma til móts við kröfur hundruða íslenskra starfsmanna sem hafa ekki fengið lögmætar kjarabætur greiddar síðastliðin fjögur ár. Kristján segir að í bígerð hafi verið lögsóknir vegna þessa en þær hugmyndir hafi nú verið lagðar á hilluna. Björninn sé þó ekki með öllu unninn. "Það er enn hópur manna sem telur á sig hallað og hyggst halda kröfum sínum til hlítar. Þar er um að ræða aðila sem telja sig eiga fleiri kröfur á hendur varnarliðinu vegna ýmissa sérsamninga þeirra starfsstéttar. Um tæplega 20 manns er þar að ræða og þeir halda málinu til streitu þrátt fyrir að þessi árangur hafi náðst. Það er of snemmt að segja að málið sé í höfn." Samþykkir varnarliðið að standa við hækkanir til starfsmanna vegna almennra kjarasamninga frá árinu 2000. Ennfremur verða greiddar upp hækkanir frá marsmánuði síðastliðnum sem og vegna launaskriðs í haust sem leið.
Fréttir Innlent Mest lesið Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Innlent Hafnaði úti í fjöru Innlent Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Erlent Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Innlent Endaði út af eftir framúrakstur Innlent Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Innlent Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Innlent Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Innlent Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Innlent Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Erlent Fleiri fréttir Beint streymi frá Gleðigöngunni Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Óskhyggja að vonast eftir afgerandi svari og deilan harðnar 72 ár síðan síðast en 170 ár þar til næst Slökkvilið brást við tilkynningu um reyk Hafnaði úti í fjöru Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Endaði út af eftir framúrakstur Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? „Nokkuð gott“ að fyrsta höggið hafi komið eftir sjö ára hjólahvísl Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Sjá meira