Póstpokinn lenti í fjörunni 2. ágúst 2004 00:01
Svo virðist sem líki Sri Ramawati hafi verið varpað af klettum ofan í fjöru áður en flæddi að. Björgunarsveitir settu út rekald í dag, til að líkja eftir reki líksins í sjónum, og lögðu sig í framkróka við að fylgja lýsingum Hákonar Eydals sem hefur viðurkennt að hafa myrt Sri. Veður og sjávarföll á Kjalarnesi í dag líktust þeim aðstæðum sem voru fjórða júlí, þegar Hákon losaði sig við líkið af Sri, eftir að hafa orðið henni að bana í átökum á heimili sínu í Stórholti. Aðstæður voru mun líkari í dag en fyrir nokkrum dögum þegar fresta þurfti aðgerðinni vegna veðurs. Björgunarsveitarmenn endursköpuðu aðstæðurnar eftir nákvæmum upplýsingum sem Hákon hefur gefið lögreglunni. Sri var meðal annars klædd í leðurjakka og var bundið fyrir sænska póstpokann með buxum. Í pokann var sett sams konar kúbein og Hákon banaði Sri með. Hákon segist hafa kastað líkinu í sjóinn milli klukkan tvö og hálf þrjú eftir hádegið. Hann er 185 cm á hæð og 85 kiló að þyngd. Pokinn sem kastað var út í dag vó 50-60 kíló en talið er ólíklegt að Hákon hafi getað lyft meiru en sjötíu kílóum, enda þurfti tvo björgunarmenn til að koma pokanum fram af klettinum í dag. Hæðin niður var fjórir metrar en það sem kom björgunarsveitamönnum verulega á óvart var að pokinn lenti á þurru og fimm metrar voru í sjóinn. Ákveðið var að draga pokann ekki út í sjó þar sem Hákon hefði ekki gert það á sínum tíma. Einum og hálfum tíma eftir að pokanum var kastað var sjór kominn að honum. Til að komast að Hofsvík á Kjalarnesi þarf að aka í gegnum tréhlið og stutt er í næstu hús. Nágrannar sem Stöð 2 ræddi við í dag sögðu lögreglu ekki hafa rætt við sig um sunnudagseftirmiðdaginn sem Hákon var á ferð á jeppa sínum. Einn íbúi á svæðinu segir nágranna sinn eiga svipaðan jeppa og hann hefði farið um þetta leyti að veiða með börnum sínum við Hofsvík. Fólkinu hrýs hugur við ef börn að leik hefðu orðið vör við líkið.
Fréttir Innlent Mest lesið „Mér varð um og ó þegar þeir voru að brjótast inn í húsið“ Innlent Umfangsmikil lögregluaðgerð víða um landið Innlent Mikið eignatjón vegna bruna í efnalaug við Háaleitisbraut Innlent Sigldi inn í Seyðisfjörð með hvalshræ á stefninu Innlent „Easy come, easy go“ Innlent Ekki talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti Innlent Eigandi Bjargar í áfalli en vonast til að bjarga fötum Innlent Vill banna nikótínvörur með bragði og gera umbúðirnar ljótar Innlent Gera Austurstræti og Veltusund varanlega að göngugötum Innlent Ökumaðurinn slapp naumlega: Þrjú þúsund lítrar af olíu um borð Innlent Fleiri fréttir Fækka hefðbundnum kennslustundum um þriðjung „Þetta er verra hjá strákunum heldur en hjá stelpunum“ Eigandi Bjargar í áfalli en vonast til að bjarga fötum Hólavallagarður friðlýstur Gerir ráð fyrir að ljúka þingstörfum fyrir mánaðamót Ekki talið að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti Tæpur helmingur ætlar að flytja aftur til Grindavíkur Kvikmyndaskólinn lifir og skólagjöld verða hóflegri „Mér varð um og ó þegar þeir voru að brjótast inn í húsið“ Kvenréttindadagur: „Baráttan er ekki búin“ Vill banna nikótínvörur með bragði og gera umbúðirnar ljótar Leita ekki Sigríðar í dag Um helmingur Grindvíkinga segist líklega ætla að snúa aftur Sigríður tekur við formennsku af Silju Báru Sigldi inn í Seyðisfjörð með hvalshræ á stefninu „Easy come, easy go“ Gera Austurstræti og Veltusund varanlega að göngugötum Umfangsmikil lögregluaðgerð víða um landið Áframhaldandi landris í Svartsengi Mikið eignatjón vegna bruna í efnalaug við Háaleitisbraut Vinir Gunnfaxa vonast til að bjarga Flugfélagsþristinum Jarðskjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Ökumaðurinn slapp naumlega: Þrjú þúsund lítrar af olíu um borð Pípari sagði skólp ástæðuna fyrir kókaíninu í blóðinu Harður árekstur þegar bíl var ekið í hlið á strætisvagni Sammála Attenborough og segir tegundir þurrkaðar út Fimmtán Íslendingar vilja komast heim Þyrla Landhelgisgæslunnar aðstoðar við leitina Íslendingar sem vilja komast heim, háhyrningatorfa og blokkamyndun Ók á húsvegg Sjá meira