Erlent

Mikil flóð í Pennsylvaníu

Úrhellis rigningar og flóð ollu miklum usla í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum í gær. Flóðin voru slík að hús fóru á bólakaf og bílar sópuðust eftir götum. Þetta olli miklum samgöngutruflunum, bæði á landi og í lofti. Skemmdir urðu miklar, en ekki er vitað til þess að neitt manntjón hafi orðið. Íbúar voru víða innlyksa á efstu hæðum eða þökum húsa sinna, og bátar og þyrlur voru notaðar til þess að bjarga þeim sem talið var að væru í hættu. Aðrir máttu sitja og bíða eftir að vatnsborðið lækkaði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×