Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 23. desember 2025 16:34 Jeffrey Epstein á tískusýningu Victoria's Secret árið 1995. Getty/Patrick McMullan Enn fleiri af svokölluðum Epstein-skjölum hafa verið birt af dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna. Meðal gagnanna er tölvupóstur frá sem grunað er að sé frá Andrew Mountbatten-Windsor þar sem hann biður um „óviðeigandi vinkonur“. Þá kemur nafn Bandaríkjaforseta fyrir. Fyrstu skjölin voru birt á föstudagskvöld en núna hafa yfir ellefu þúsund blaðsíður verið birtar til viðbótar. Fréttamenn breska ríkisútvarpsins eru meðal blaðamanna sem gramsa nú í skjölunum og greina þeir frá tölvupósti undirrituðum með stafnum A frá Balmoral. Í bréfinu segir að A sé í Balmoral-sumarbúðunum fyrir bresku konungsfjölskylduna. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is og á Píeta símann s.552-2218. Í tölvupóstinum hreykir A sér af því að „stelpurnar séu þreyttar eftir kvöldið“ og virðist sem um kynferðislega merkingu orða hans sé að ræða. „The Girls are completely shattered and I will have to give them an early night as it is getting tiring splitting them up all the time!“ Þá spyr A hvort búið sé að finna einhverja „óviðeigandi vini“ fyrir hann. Tölvupósturinn er sendur frá netfanginu abx17@dial.pipex.com þann 16. ágúst 2001 til Ghislaine Maxwell, aðstoðarkonu og maka Epsteins. Hún situr nú í fangelsi. Annað netfang er vistað í tengiliðaskrá Epsteins fyrir Mountbatten-Windsor, aace@dial.pipex.com, en í tölvupóstum frá báðum netföngunum er undirskriftin A xxx. Ekki hefur fengist nein staðfesting á því að um sé að ræða Mountbatten-Windsor. Mountbatten-Windsor var lengi þekktur sem Andrés prins, en hann var sviptur prinstitilinum í lok október. Hann hefur alltaf neitað öllum ásökunum um að hann hafi tekið þátt í og vitað af gjörðum Epsteins. Trump og Epstein ferðuðust saman Í fyrsta hluta skjalanna kom nafn Donalds Trump Bandaríkjaforseta sjaldan fyrir og var lítið um nýjar upplýsingar varðandi tengsl hans við Epstein. Þeir voru vinir á árum áður en slitnaði upp úr vinskapnum árið 2004 þegar þeir deildu um fasteign í Flórída. Nafn Donalds Trump Bandaríkjaforseta kemur þó nokkrum sinnum fyrir í skjölunum. Til að mynda er tölvupóstur frá saksóknara á vegum ríkisins þar sem kemur fram að Trump hafi ferðast átta sinnum með einkaþotu Epsteins á árunum 1993 til 1996. Fjöldi flugferðanna virðist hafa komið saksóknaranum á óvart. Í að minnsta kosti fjórum af flugferðunum var Maxwell einnig með í för. Þá ferðuðust einnig með honum börnin hans Tiffany og Eric. Í einu ferðalaginu voru einungis Trump og Epstein saman en í öðru var tuttugu ára einstaklingur með þeim en nafn viðkomandi hefur verið máð út. Efast um tilraun til sjálfsvígs Einnig voru birt skjöl sem tengjast fangelsisvist Epstein árið 2019 samkvæmt NYT. Hann tók sitt eigið líf í júlí það sama ár. Sálfræðingur fangelsisins efaðist í fyrstu um hvort að hann hefði í raun reynt sjálfur að fremja sjálfsvíg. Mögulega hefði Epstein viljandi fengið núningssár á hálsinn af eigin hendi til að vekja athygli á sér. Tveimur vikum síðar lést Epstein í fangelsinu og er opinberlega niðurstaðan að um sjálfsvíg hafi verið að ræða. Epstein var í gæsluvarðhaldi á meðan hann beið eftir að fara fyrir dóm vegna mansals. Í skjölunum mátti einnig finna skattframtal Maxwell, ábendingar til Alríkislögreglu Bandaríkjanna og innanhússsamskipti úr fangelsinu sem Epstein var vistaður í. Von er á að ráðuneytið birti fleiri skjöl á næstu vikum. Mál Jeffrey Epstein Bandaríkin Erlend sakamál Donald Trump Mál Andrésar prins Tengdar fréttir Epstein-skjölin birt Epstein-skjölin hafa verið birt á vefsíðu dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna. Birting skjalanna hafa valdið miklum usla vestanhafs en þau tengjast rannsóknum á barnaníðingnum Jeffrey Epstein. 19. desember 2025 23:16 Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Skjöl sem vonast var til að varpað gætu frekara ljósi á mál barnaníðingsins Jeffrey Epstein virðast innihalda fáar nýjar upplýsingar. Ný skjöl frá 2007 sýna að rannsakendur ræddu við unga konu sem sagðist hafa fengið greitt fyrir að útvega Epstein stúlkur. 21. desember 2025 08:09 Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Hið minnsta sextán skrár hafa verið fjarlægðar af opinni vefsíðu bandaríska dómsmálaráðuneytisins sem höfðu verið opinberaðar í gær í tengslum við barnaníðinginn Jeffrey Epstein. Þar á meðal hefur skjal sem sýndi ljósmynd af Donald Trump Bandaríkjaforseta horfið af vefsíðu ráðuneytisins, en ekki liggur fyrir hvers vegna. 20. desember 2025 23:44 Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum Innlent Fleiri fréttir Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Sjá meira
Fyrstu skjölin voru birt á föstudagskvöld en núna hafa yfir ellefu þúsund blaðsíður verið birtar til viðbótar. Fréttamenn breska ríkisútvarpsins eru meðal blaðamanna sem gramsa nú í skjölunum og greina þeir frá tölvupósti undirrituðum með stafnum A frá Balmoral. Í bréfinu segir að A sé í Balmoral-sumarbúðunum fyrir bresku konungsfjölskylduna. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is og á Píeta símann s.552-2218. Í tölvupóstinum hreykir A sér af því að „stelpurnar séu þreyttar eftir kvöldið“ og virðist sem um kynferðislega merkingu orða hans sé að ræða. „The Girls are completely shattered and I will have to give them an early night as it is getting tiring splitting them up all the time!“ Þá spyr A hvort búið sé að finna einhverja „óviðeigandi vini“ fyrir hann. Tölvupósturinn er sendur frá netfanginu abx17@dial.pipex.com þann 16. ágúst 2001 til Ghislaine Maxwell, aðstoðarkonu og maka Epsteins. Hún situr nú í fangelsi. Annað netfang er vistað í tengiliðaskrá Epsteins fyrir Mountbatten-Windsor, aace@dial.pipex.com, en í tölvupóstum frá báðum netföngunum er undirskriftin A xxx. Ekki hefur fengist nein staðfesting á því að um sé að ræða Mountbatten-Windsor. Mountbatten-Windsor var lengi þekktur sem Andrés prins, en hann var sviptur prinstitilinum í lok október. Hann hefur alltaf neitað öllum ásökunum um að hann hafi tekið þátt í og vitað af gjörðum Epsteins. Trump og Epstein ferðuðust saman Í fyrsta hluta skjalanna kom nafn Donalds Trump Bandaríkjaforseta sjaldan fyrir og var lítið um nýjar upplýsingar varðandi tengsl hans við Epstein. Þeir voru vinir á árum áður en slitnaði upp úr vinskapnum árið 2004 þegar þeir deildu um fasteign í Flórída. Nafn Donalds Trump Bandaríkjaforseta kemur þó nokkrum sinnum fyrir í skjölunum. Til að mynda er tölvupóstur frá saksóknara á vegum ríkisins þar sem kemur fram að Trump hafi ferðast átta sinnum með einkaþotu Epsteins á árunum 1993 til 1996. Fjöldi flugferðanna virðist hafa komið saksóknaranum á óvart. Í að minnsta kosti fjórum af flugferðunum var Maxwell einnig með í för. Þá ferðuðust einnig með honum börnin hans Tiffany og Eric. Í einu ferðalaginu voru einungis Trump og Epstein saman en í öðru var tuttugu ára einstaklingur með þeim en nafn viðkomandi hefur verið máð út. Efast um tilraun til sjálfsvígs Einnig voru birt skjöl sem tengjast fangelsisvist Epstein árið 2019 samkvæmt NYT. Hann tók sitt eigið líf í júlí það sama ár. Sálfræðingur fangelsisins efaðist í fyrstu um hvort að hann hefði í raun reynt sjálfur að fremja sjálfsvíg. Mögulega hefði Epstein viljandi fengið núningssár á hálsinn af eigin hendi til að vekja athygli á sér. Tveimur vikum síðar lést Epstein í fangelsinu og er opinberlega niðurstaðan að um sjálfsvíg hafi verið að ræða. Epstein var í gæsluvarðhaldi á meðan hann beið eftir að fara fyrir dóm vegna mansals. Í skjölunum mátti einnig finna skattframtal Maxwell, ábendingar til Alríkislögreglu Bandaríkjanna og innanhússsamskipti úr fangelsinu sem Epstein var vistaður í. Von er á að ráðuneytið birti fleiri skjöl á næstu vikum.
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is og á Píeta símann s.552-2218.
Mál Jeffrey Epstein Bandaríkin Erlend sakamál Donald Trump Mál Andrésar prins Tengdar fréttir Epstein-skjölin birt Epstein-skjölin hafa verið birt á vefsíðu dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna. Birting skjalanna hafa valdið miklum usla vestanhafs en þau tengjast rannsóknum á barnaníðingnum Jeffrey Epstein. 19. desember 2025 23:16 Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Skjöl sem vonast var til að varpað gætu frekara ljósi á mál barnaníðingsins Jeffrey Epstein virðast innihalda fáar nýjar upplýsingar. Ný skjöl frá 2007 sýna að rannsakendur ræddu við unga konu sem sagðist hafa fengið greitt fyrir að útvega Epstein stúlkur. 21. desember 2025 08:09 Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Hið minnsta sextán skrár hafa verið fjarlægðar af opinni vefsíðu bandaríska dómsmálaráðuneytisins sem höfðu verið opinberaðar í gær í tengslum við barnaníðinginn Jeffrey Epstein. Þar á meðal hefur skjal sem sýndi ljósmynd af Donald Trump Bandaríkjaforseta horfið af vefsíðu ráðuneytisins, en ekki liggur fyrir hvers vegna. 20. desember 2025 23:44 Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum Innlent Fleiri fréttir Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Sjá meira
Epstein-skjölin birt Epstein-skjölin hafa verið birt á vefsíðu dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna. Birting skjalanna hafa valdið miklum usla vestanhafs en þau tengjast rannsóknum á barnaníðingnum Jeffrey Epstein. 19. desember 2025 23:16
Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Skjöl sem vonast var til að varpað gætu frekara ljósi á mál barnaníðingsins Jeffrey Epstein virðast innihalda fáar nýjar upplýsingar. Ný skjöl frá 2007 sýna að rannsakendur ræddu við unga konu sem sagðist hafa fengið greitt fyrir að útvega Epstein stúlkur. 21. desember 2025 08:09
Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Hið minnsta sextán skrár hafa verið fjarlægðar af opinni vefsíðu bandaríska dómsmálaráðuneytisins sem höfðu verið opinberaðar í gær í tengslum við barnaníðinginn Jeffrey Epstein. Þar á meðal hefur skjal sem sýndi ljósmynd af Donald Trump Bandaríkjaforseta horfið af vefsíðu ráðuneytisins, en ekki liggur fyrir hvers vegna. 20. desember 2025 23:44